Reykjavík Arts Festival
Fréttir

LEIF OVE ANDSNES

28/2/2010

  • Leif Ove Andsnes í heimildarmynd NRK
Norski píanóleikarinn Leif Ove Andsnes hefur fest sig í sessi sem einn virtasti og eftirsóttasti tónlistarmaður heims og er aufúsugestur í helstu tónleikasölum veraldar.  Hann er gríðarlega fjölhæfur tónlistarmaður, óhræddur við að takast á við ólík verkefni og hefur gefið út yfir 30 geisladiska þar sem hann leikur allt frá Bach til samtímatónlistar. Fyrir þá hefur hann verið tilnefndur til sjö Grammy-verðlauna en að auki hefur hann hlotið fjölmörg önnur verðlaun m.a. fern Gramophone verðlaun.  
Leif Ove Andsnes var í aðalhlutverki í "Ballöðu númer fimm", verðlaunaðri heimildarmynd, sem sýnd verður í Sjónvarpinu 6. mars nk.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík


Útlit síðu:

langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica