LISTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 12. MAÍ - 5. JÚNÍ
Listahátíð í Reykjavík verður haldin dagana 12. maí til 5. júní. Hátíðin framundan er blönduð hátíð þar sem allar listgreinar njóta sín; tónlist, leiklist, dans, bókmenntir og í sýningarsölum verður lögð áhersla á ljósmyndir. Viðburðir hátíðarinnar fara fram jafnt á hefðbundnum sem og óhefðbundnum stöðum og þar mætast listamenn þvert á listgreinar og landamæri. Heildardagskrá hátíðarinnar verður kynnt í lok mars en þangað til segjum við allar nýjustu fréttirnar hér í fréttabréfinu og á Facebook síðu hátíðarinnar.
Fylgdu Listahátíð á Facebook.

