Reykjavík Arts Festival
Fréttir

SANNKALLAÐ SÚPERTRÍÓ Á LISTAHÁTÍÐ

15/3/2010

  • Andsnes og Tetzlaff systkinin saman á tónleikum í fyrra

„Magnaður kraftur og hrífandi innsæi“ eru orð blaðamanns Daily Telegraph um samstarf Leif Ove Andsnes, Christian Tetzlaff og Tanja Tetzlaff. Þessir merku einleikarar og vinir hafa ástríðu fyrir kammertónlist og koma fram reglulega saman. Á tónleikunum á Listahátíð í Reykjavík leika þau rómantíska og tilfinningaríka efnisskrá sem er tileinkuð Robert Schumann, en í ár eru 200 ár liðin frá fæðingu hans. Auk þess leika þau hvort í sínu lagi með Andsnes Ævintýramyndir fyrir selló og píanó eftir tékkneska tónskáldið Leoš Janáček, sem margir muna eftir í kvikmynd Philips Kaufmans, „Óbærilegur léttleiki tilverunnar“ og hina ljúfu Sónatínu Antonín Dvořák í G dúr, ópus 100 fyrir fiðlu og píanó.

Nánari upplýsingar um viðburðinn

Kaupa miða

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík


Útlit síðu:

langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica