Reykjavík Arts Festival
Fréttir

ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNIN

19/2/2010

  • Hjaltalín

Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna  hafa verið kynntar og er Hjaltalín með 5 tilnefningar í ár, m.a. sem tónlistarflytjandi ársins fyrir tónleika sína
á Listahátíð í Reykjavík 2009. Tónleikarnir slógu rækilega í gegn en þar komu saman í fyrsta sinn Hjaltalín og Daníel Bjarnason, en hann er einmitt tilnefndur í nokkrum flokkum, m.a. fyrir tónverk ársins og sígilda plötu ársins.

Í þeim flokki er Víkingur Heiðar Ólafsson einnig tilnefndur fyrir plötu sína Debut en hann hélt einleikstónleika í Háskólabíói á síðustu hátíð
þar sem hann flutti m.a. eigin umritanir á íslenskum sönglögum. Víkingur Heiðar er einnig tilnefndur í flokki Tónlistarflytjandi ársins og það er líka Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir eftirminnilega tónleika með Gennadíj Rosdestvenskíj sem fluttir voru á Listahátíð.

Auk þess eru Bloodgroup, Retro Stefson og FM Belfast tilnefnd til tónlistarverðlaunanna en þau komu öll fram á stofutónleikum síðustu hátíðar. Að lokum má nefna að Spirit of Iceland með Stórsveit Reykjavíkur og Bob Mintzer er tilnefnd sem jazzplata ársins.

Listahátíð í Reykjavík óskar öllum til hamingju með tilnefningarnar.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík


Útlit síðu:

langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica