FORSALA HEFST Í MARS
Vorið er tími Listahátíðar og það er óhætt að byrja að hlakka til því dagskrá Listahátíðar í ár verður fjölbreytileg, nýstárleg og klassísk og hefðbundnir og óhefðbundnir staðir verða vettvangur listarinnar í vor. Áhersla verður á ljósmyndir með fjölda sýninga íslenskra og erlendra ljósmyndara. Heildardagskrá hátíðarinnar verður kynnt í lok mars en áður en að því kemur verður meðlimum Klúbbs Listahátíðar boðið að kaupa miða í forsölu á stærstu viðburði hátíðarinnar. Hér er hægt að skrá sig í Klúbb Listahátíðar.

