Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

LIBIA OG ÓLAFUR FULLTRÚAR ÍSLANDS Í FENEYJUM

15/1/2010

  • Libia og Ólafur

Spænsk/íslenska listamannatvíeykið Ólafur Ólafsson og Libia Pérez de Silva de Castro voru í liðinni  viku valin sem fulltrúar Íslands á Feneyjatvíæringnum 2011.  Þau hafa starfað saman að listsköpun frá árinu 1996 og vinna nær alltaf með viðfangsefni úr því umhverfi og kringumstæðum þess staðar og samfélags sem sýning verka þeirra  fer fram.

Á heimasíðu Ólafs og Libiu eru greinargóðar upplýsingar um feril þeirra og meðal annars má þar sjá myndir frá sýningu þeirra á Listahátíð í Reykjavík árið 2005 sem bar nafnið El Ruido del Dinero eða Hávaði peninganna.

Christian Schoen, forstöðumaður Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar segir um valið  í fréttatilkynningu frá Kynningarmiðstöð Íslenskrar myndlistar: „Með valinu á Libiu Castro og Ólafi Ólafssyni er teflt fram í íslenska skálanum í Feneyjum 2011 listamannateymi sem hefur byggt upp afar sterka röð sýninga á undanförnum árum og þróað með sér persónulega og grípandi nálgun sem vekur athygli í heimi samtímalistarinnar.  Þau eru verðugir fulltrúar íslenskrar samtímalistar, listamenn sem starfa í fremstu víglínu og beita gagnrýnni félagslegrigreiningu sem á brýnt erindi við okkur.“  

Sjá meira um þátttöku Íslands í Feneyjatvíæringnum á heimasíðu Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar.


Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica