Reykjavík Arts Festival
Fréttir

LHASA DE SELA LÁTIN

4/1/2010

  • Lhasa de Sela

Söngvaskáldið Lhasa De Sela er látin aðeins 37 ára að aldri eftir baráttu við brjóstakrabbamein. Lhasa de Sela var gestur Listahátíðar í Reykjavík í maí síðastliðnum og lék ásamt hljómsveit sinni á tvennum troðfullum tónleikum í Nasa. Þessir eftirminnilegu tónleikar áttu að vera upphaf að tónleikaferð sem hefjast átti síðastliðið haust sem var frestað vegna veikinda hennar. Reyndust tónleikar Lhasa de Sala á Listahátíð í Reykjavík þeir síðustu á ferli hennar. Hún dvaldi á Íslandi í nokkra daga eftir tónleikana ásamt vinum sínum í hljómsveitinni og hafði starfsfólk Listahátíðar ákaflega ánægjuleg kynni af þeim. David-Etienne Savoie umboðsmaður hennar sagði hana hafa verið mjög ánægða með komuna þrátt fyrir veikindin, enda hafði hana lengi dreymt um að syngja á Íslandi.

Starfsfólk Listahátíðar þakkar innilega kynnin af þessum einstaka listamanni og hefur sent samúðarkveðjur til fjölskyldu hennar og nánustu samstarfsmanna.

Hér er hægt að hlaða niður fréttatilkynningu frá aðstandendum Lhasa de Sela.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík


Útlit síðu:

langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica