GJAFAKORT LISTAHÁTÍÐAR
Nú getur þú glatt þína nánustu með því að gefa gjöf sem lifir lengi og hlakka má til. Listahátíð í Reykjavík gefur nú út í fyrsta sinn fyrir jólin sérprentuð gjafakort. Gjafakortin gilda sem greiðsla upp í miða á viðburði hátíðarinnar sem fram fer dagana 12. maí til
5. júní 2010. Á hátíðinni verður margt um glæsilega viðburði, innlenda og erlenda, sem kynntir verða þegar miðasala hefst eftir áramót.
Hægt er að velja um kort að upphæð 2.500 eða 5.000 krónur og má kaupa þau á skrifstofu Listahátíðar alla virka daga fram að jólum frá kl. 9.00 til 16.00 og til kl. 18.00 á Þorláksmessu.
Gjafakortin má einnig kaupa á einfaldan hátt hér á vefnum með því að smella á Kaupa miða hnappin til hægri á síðunni.
Hægt er að velja á milli þess að fá kortið sent í pósti eða að sækja það á skrifstofuna.
Athugið að andvirði gjafakortsins fæst ekki endurgreitt í peningum.

