TIL HAMINGJU ÞORSTEINN
Þorsteinn frá Hamri, einn höfundanna sem þátt tóku í húslestrum
sem fram fóru á Listahátíð í vor, hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember sl. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti honum verðlaunin í Ketilhúsinu á Akureyri.
Í umsögn ráðgjafarnefndar verðlaunanna segir m.a. að Þorsteinn sé meðal fremstu
skálda Íslands. Hann hafi glímt við gamlan og nýjan sið í skáldskap frá unga
aldri en hin gamla íslenska ljóðhefð hafi alla tíð átt sterkar rætur í honum.
Listahátíð óskar Þorsteini innilega til hamingju með verðlaunin.

