VERKEFNI LISTAHÁTÍÐAR FARA VÍÐA
Nokkur verkefni frá síðustu Listahátíð hafa fengið framhaldslíf og birtast nú á ný í ýmsum myndum. Fyrst má nefna að kvikmynd Gjörningaklúbbsins Vitaskuld, Auðvitað! um gjörninginn sem fluttur var í Garðskagavita á Listahátíð í vor sem hluti verkefnisins Brennið þið vitar var sýnd í Regnboganum sem hluti af Sequences myndlistarhátíðinni nýverið.
Einnig héldu Hjaltalín og kammersveit undir stjórn Daníels Bjarnasonar tónleika í Fríkirkjunni á nýafstaðinni Iceland Airwaves hátíð, en Listahátíð leiddi þau fyrst saman á tónleikunum í Óperunni í vor, fyrir troðfullu húsi og glimrandi stemningu.
Að lokum er gaman að segja frá því að út er komin bókin Íslensk samtímahönnun um íslenska vöruhönnun, húsgagnahönnun og arkitektúr eftir Elísabetu V. Ingvarsdóttur. Bókin er gefin út í samstarfi Crymogeu við Hönnunarmiðstöð Íslands og unnin í tengslum við farandsýninguna Íslensk hönnun 2009 – Húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr, sem sett var upp á Kjarvalsstöðum á Listahátíð í Reykjavík 2009. Forsíða bókarinnar er eftir Katrínu Ólínu sem hannaði einmitt veggspjald hátíðarinnar í ár.

