Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

FULLTRÚARÁÐSFUNDUR

23/10/2009

  • Inga Jóna Þórðardóttir, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Hrefna Haraldsdóttir og Katrín Jakobsdóttir

Á fulltrúaráðsfundi Listahátíðar í Reykjavík sem fram fór 23. október síðastliðinn voru fluttar skýrslur formanns stjórnar Listahátíðar, Ingu Jónu Þórðardóttur og Hrefnu Haraldsdóttur, listræns stjórnanda. Hrefna fór yfir síðustu hátíð sem tókst vel til að öllu leyti, miðasala var góð og viðtökur einstaklega jákvæðar. Á næsta ári verður hátíðin sett 12. maí og lýkur 5. júní og mun hún þá fagna 40 ára afmæli sínu. Dagskráin verður kynnt síðar.

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri, gerði grein fyrir ársreikningi 2008,
9 mánaða upppgjöri 2009 og rekstraráætlun 2010. Útkoma Listahátíðar 2009 var góð, allar áætlanir stóðust þrátt fyrir miklar breytingar í rekstrarumhverfi.

Fulltrúaráð er skipað rúmlega 30 fulltrúum helstu listastofnana og félögum listamanna. Fundurinn var vel sóttur og sátu fundinn Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og formaður fulltrúaráðs, og Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, en þær gegna formennsku í ráðinu til skiptis tvö ár í senn.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica