MARKAÐS- OG KYNNINGARSTJÓRI
Steinunn Þórhallsdóttir hefur verið ráðin markaðs- og kynningarstjóri Listahátíðar í Reykjavík og mun hún hefja störf 1. desember næstkomandi. Umsóknarfrestur um stöðuna rann út 1. október síðastliðinn og sóttu tæplega sextíu manns um.
Steinunn Þórhallsdóttir er með B.A. gráðu í spænsku og bókmenntum frá Háskóla Íslands og hefur auk þess sótt fjölda námskeiða í tungumálum, markaðsfræði og mannauðsstjórnun við háskóla í Mexíkó, á Spáni og í Kaupmannahöfn.
Hún starfaði sem verkefnastjóri hjá Endurmenntun Háskóla Íslands en hefur lengst af unnið við dagskrárgerð hjá Ríkissjónvarpinu, m.a. við þættina Mósaík og Af fingrum fram.
Listahátíð í Reykjavík býður Steinunni velkomna til starfa.

