LJÓS Í MYRKRINU
Mikill fjöldi innlendra og erlendra farfugla hefur í sumar lagt leið sína á Listahátíðarsýningarnar Brennið þið, vitar!, sem stóðu frá setningarhelgi Listahátíðar um miðjan maí til mánudagsins 3. ágúst í fjórum vitum, einum í hverjum landshluta; Garðskagavita, Bjargtangavita, Kópaskersvita og Dalatangavita.
Í ágúst/septemberhefti menningartímaritsins DAMN° er að finna áhugaverða grein undir yfirskriftinni Light in the Darkness um sýningarnar fjórar, eftir Markús Þór Andrésson, sem jafnframt var sýningarstjóri Brennið þið, vitar! ásamt Dorothée Kirch.
Stuttan inngang að greininni er að finna hér:
http://www.damnmagazine.net/magazines/current_issue
DAMN° er virt alþjóðlegt tímarit um listir og samtímamenningu, sjálfstæð útgáfa þar sem mörkin á milli hönnunar, arkitektúr og lista eru ekki mörkuð á skýran hátt heldur könnuð.
