Spilað fyrir sjóinn
Hljómsveitin amiina, í samstarfi við Kraum tónlistarsjóð, heldur ferna tónleika við sjávarsíðuna í lok júlí. Spilað verður í hvalasafni, Bláu kirkjunni á Seyðisfirði og í Sauðanesvita og Dalatangavita. Í Dalatangavita sýnir Unnar Örn STAÐARSKÁLANN, sem er hluti af Brennið þið, vitar!, myndlistarsýningum sem Listahátíð í Reykjavík 2009 stendur fyrir í fjórum vitum hringinn í kringum landið.
Tónleikadagskrá amiinu verður sniðin að umhverfinu; stutt efnisskrá í sérstökum útsetningum til að passa inní umgjörðina, í mikilli nánd við sjóinn sem og áheyrendur.
Dagsetningar:
24. júlí kl.17 – Bláa kirkjan á Seyðisfirði
25. júlí kl.16 – Dalatangaviti
26. júlí kl. 21 - Hvalasafnið á Húsavík
27. júlí kl. 17 – Sauðanesviti
Aðgangur er ókeypis.

