Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Sumarsólstöðum fagnað í Kópaskersvita

17/6/2009

  • Kopaskersviti

 

 

Myndlistarmaðurinn Ásdís Sif Gunnarsdóttir og tónlistarmaðurinn Kristín Anna Valtýsdóttir standa fyrir uppákomu í tilefni sumarsóstöðuhátíðar á sunnudag 21. júní og sýningar þeirrar fyrrnefndu sem nú stendur í Kópaskersvita.

Ásdís Sif er kunn fyrir gjörningalist sína og Kristín Anna fyrir tónlist, hvort heldur í samstarfi við hljómsveitina Múm eða á eigin vegum. Á sunnudagskvöld bjóða þær upp á tónleika og gjörning í Skjálftasetrinu á Kópaskeri kl. 22:00 ásamt kvöldgöngu út í Kópaskersvita þar sem sumarsólstöðum verður fagnað. Listakonurnar munu eftir helgi halda til Bandaríkjanna þar sem þær munu endurtaka uppákomuna í New York.

Listviðburðurinn er haldinn í tengslum við sumarsólstöðuhátíðina, „Nóttlausa voraldar veröld”, og myndlistarsýninguna, „Brennið þið, vitar!”, sem opnuð var á Listahátíð í Reykjavík 17. maí s.l.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica