Mörg andlit LISTAHÁTÍÐAR 2009
Á rabbfundi fulltrúaráðs Listahátíðar í Reykjavík, sem haldinn var þriðjudaginn 16. júní í Iðusölum, kom fram mikil ánægja með nýliðna Listahátíð. Gerður var góður rómur að þeirri fjölbreytni sem einkenndi dagskrána í ár, sem fundarmenn töldu að endurspeglaðist m.a. í mjög breiðum áhorfendahópi.
Sú stefna nýs stjórnanda Listahátíðar að halda blandaðar Listahátíðir næstu árin í stað þess að tileinka hverja hátíð einni ákveðinni listgrein var jafnframt rædd og var almenn skoðun sú að það hefði gefist vel, einnig með tilliti til markaðssetningar hátíðarinnar.
Í opinskáum umræðum um hlutverk Listahátíðar í Reykjavík töldu menn það vera að auka lífsgæði í landinu, ekki síst þegar fjárhagur manna væri að þrengjast, og væri sú stefna Listahátíðar að halda lágu miðaverði vel til þess fallin að gefa landsmönnum öllum kost á að sækja viðburði hátíðarinnar.
Þá var sérstaklega nefnd sterk nærvera fjölda íslenskra listamanna á hátíðinni, einkum á vel heppnuðum nýjungum hátíðarinnar, Stofutónleikum og Húslestrum, sem hefði gert það að verkum að andlit Listahátíðar hefðu verið óvenju mörg og að fleiri áhorfendur hefðu fundið þar dagskrárliði sem töluðu til þeirra.
Niðurstaða fundarins var sú að fjölbreytni ætti áfram að vera lykillinn að samsetningu Listahátíðar í Reykjavík.

