Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

„Bestu gestgjafarnir sem við höfum nokkru sinni sótt heim"

16/6/2009

  • Lhasa de Sela

 

Á vefsíðu söngkonunnar Lhasa de Sela er minnst sérstaklega á Listahátíðartónleikana á Íslandi. Upphaflega stóð til að þeir yrðu einir en vegna þess hve fljótt þeir seldust upp var ákveðið að efna til aukatónleika daginn eftir. Þar er minnst sérstaklega á gestrisni Íslendinga og sagt:  „Listahátíð í Reykjavík eru vinsamlegustu og bestu gestgjafarnir sem við höfum nokkru sinni sótt heim. Starfsfólkið þar lagði sérstaka lykkju á leið sína til þess við mættum komast að raun um hversu landið þeirra er fallegt.”

Lhasa de Sela, hljómsveit hennar og starfsfólk tilkynnir á vef Lhasadesela.com að af illri nauðsyn þurfi þau því miður að fresta fyrirhugaðri tónleikaferð til Evrópu um óákveðnum tíma vegna veikinda söngkonunnar.

Lhasa de Sela hefur átt við alvarleg veikindi að stríða í meira en ár. En þrátt fyrir að hafa farið hægt að stað, og að meðferðin við veikindunum hafi gengið vel,  reyndar svo mjög að hún var þess fullviss að geta haldið ótrauð áfram, kom í ljós að tónleikaferðir hennar til Bretlands, Frakklands, og Íslands og allt sem þeim fylgdi,  reyndust henni of erfiðir.  Til þess að geta farið sem fyrst aftur í tónleikaferð leggur hún sig nú fram um að ná fullum bata.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica