Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Færeyska óperan Í ÓÐAMANSGARÐI tilnefnd til Grímunnar

11/6/2009

  • Í Óðamansgarði

Tónlist Sunleif Rasmussen í óperunni Í Óðamansgarði og lýsing Lárusar Björnssonar eru tilnefndar til Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna sem afhent verða í Borgarleikhúsinu 16. júní. Óperan var sett upp í nýrri sviðsetningu Listahátíðar í Reykjavík, Tjóðpallsins í Færeyjum og Þjóðleikhússins á Listahátíð 2009 og voru sýningarnar alls tvær.

 

Í Óðamansgarði er fyrsta færeyska óperan. Hún var frumsýnd í Þórshöfn haustið 2006 en höfundur hennar, Sunleif Rasmussen, hlaut Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2002. Óperan byggir á samnefndri smásögu Williams Heinesen úr smásagnasafninu Fjandinn hleypur í Gamalíel.

Hugmyndin að óperunni kviknaði árið 2001 þegar meðlimir tónlistarhópsins Aldubáran skoruðu á Sunleif Rasmussen að skrifa óperu. Hann tók áskoruninni og fékk Dánial Hoydal til þess að skrifa líbrettó. Ljóð- og myndræn saga Heinesen reyndist tilvalið efni í óperu. Sagan á sér hvorki tíma né rúm, heldur hverfist um brjálæðinginn ógurlega sem er einbúi. Helstu sögupersónurnar eru Marselius og Stella; par á unglingsaldri sem veltir því stöðugt fyrir sér hver sé saga brjálæðingsins. Býr hann yfir yfirnáttúrulegum mætti? Er hann yfirleitt til? Kjarninn í þessum spurningum, og svörunum við þeim, fær unga fólkið til þess að skoða sig sjálf og samband sitt í nýju ljósi.

Íslenskir og færeyskir listamenn tóku þátt í sýningunni. Til gamans má geta þess að leikmyndahönnuður sýningarinnar er Elisa Heinesen, barnabarn Williams Heinesen.

 

Aðstandendur sýningarinnar og flytjendur:

Tónlistarhópurinn Aldubáran, skipaður færeyskum og íslenskum tónlistarmönnum

Höfundur: Sunleif Rasmussen

Líbrettóhöfundur: Dánial Hoydal

Leikstjóri: Ria Tórgarð

Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson

Danshöfundur: Lára Stefánsdóttir

Söngvarar: Eyjólfur Eyjólfsson, tenór, Þóra Einarsdóttir, sópran og Bjarni Thor Kristinsson, bassi.

Dansarar: Frank Fannar Pedersen, Unnur Elísabet Gunnarsdóttir

Leikarar: Gunnvá Zachariasen og Hans Tórgarð

Aldubáran skipa:  Andrea Heindriksdóttir, flauta,  Eydís Franzdóttir, óbó, Àrmann Helgason, klarinett, Christina Andersen, básúna, Stefán Jón Bernharðsson, franskt horn, Johan Hentze, trompet,  Andras Olsen, básúna, Òlavur Jakobsen , gítar, Jóhannes Andreasen hljóðgervill (Hljómborð), Matias Siebeck, gítar, Sámal Petersen, fiðla, Jón Festirstein, fiðla, Angelika Nielsen lágfiðla, Tóri Restorff Jacobsen, selló, Agnar Lamhauge, kontrabassi.

 

 

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica