Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

GLÆSILEGAR VIÐTÖKUR

7/8/2009

  • Hjaltalín og kammersveit
  • Tiger Lillies
  • Deborah Voigt sópransögnkona

Fyrir utan þátttöku um 500 listamanna, framúrskarandi aðsókn og almenna ánægju með Listahátíð í Reykjavík 2009 birtist hver fimm stjörnu dómurinn á fætur öðrum á forsíðu Morgunblaðsins. 

Hér sjáum við brot úr þeim:

"Hún hafði fallega þétta og kraftmikla rödd, en líka sjarmerandi sviðsframkomu sem einkenndist af lúmskum húmor."

"Áheyrendur bókstaflega öskruðu af hrifningu. Ekki er annað hægt en að gefa svona tónleikum fimm stjörnur, helst stjörnuþoku" var sagt um lokatónleika Listahátíðar með sópransöngkonunni Deboruh Voigt í Morgunblaðinu í morgun.

"Óhætt er að fullyrða að þetta hafi verið með merkustu tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá upphafi"
sagði í dómi um Listahátíðartónleika rússnesku goðsagnarinnar Rosdetvenskij og Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem voru í Háskólabíói 28. maí.

"Fagnaðarlátunum ætlaði svo aldrei að linna og uppklappslagið var glæsileg útgáfa af Sjómannavalsi Svavars Benediktssonar. Þegar hér var komið sögu langaði mann ekkert að til að fara heim. Það var unaðslegur ævintýrabragur yfir salnum og maður gekk út í nóttina með glóð í geði" sagði í fimm stjörnu dómi Morgunblaðsins um tónleika Hjaltalín og kammersveitar undir stjórn Daníels Bjarnasonar sem fram fóru í Íslensku óperunni 27. maí.

Hið altæka píanóljón var fyrirsögnin á afar góðum fjögurra stjörnu dómi sem Víkingur Heiðar Ólafsson fékk eftir einleikstónleika sína á Listahátíð 17. maí á síðum Morgunblaðsins.  Í upphafi hans sagði: Listahátíð skoraði drekkhlaðinn húsfylli í Háskólabíói með einleikstónleikum Víkings Heiðars Ólafssonar.  Allir...vildu augljóslega vera viðstaddir þegar efnilegasti píanisti okkar í áraraðir lagði undir sig stærsta tónleikasal landsins einn og óstuddur. “  Á öðrum stað í sama dómi segir: „...fer því að hylla undir altækt píanóljón í fornri og fullri merkingu orðsins frá þeim tíma er fagið náði einnig yfir frumsamin verk, útsetningar og snarstefjaðan spuna af fingrum fram.“

Söngvaskáldið Lhasa de Sela fékk ekki síðri dóma, bæði á síðum Fréttablaðsins og Morgunblaðsins í kjölfar tónleika hennar og hljómsveitar í Nasa 23. og 24. maí.  Upphaflega stóð til að tónleikarnir yrðu aðeins einir en vegna þess hve fljótt þeir seldust upp var efnt til aukatónleika daginn eftir sem einnig fylltust: Það er eitthvað styrkjandi við það að fylgjast með slíkum náttúrubörnum að störfum,“ sagði á síðum Morgunblaðsins en í Fréttblaðinu birtist m.a. eftirfarandi: „Lhasa gaf sig á fullu í tónleikana spjallaði á milli laga og skilaði fínum og innilegum tónleikum.“

Færeyska óperan Í Óðamansgarði fékk einnig frábæra umsögn í Morgublaðinu, fjóra og hálfa stjörnu, og þar sagði m.a.: „Í Óðamansgarði er fallegt verk sem fæst við það besta og mennskasta í okkur öllum, -að vilja lifa.“

Kammersveit Reykjavíkur flutti tónlist eftir Konur úr Austurvegi og fékk mikið lof fyrir. Í niðurlagi dóms í Morgunblaðinu eftir tónleikana sagði: „...hljóðfæraleikarar Kammersveitarinnar sköpuðu óræða stemmningu á mörkum þessa heims, óviðjananlega fagran skáldskap sem mun lifa í minningunni um ókomna tíð.“

Tiger Lillies vöktu einnig mikla hrifningu og fengu góða umsögn: „Þrátt fyrir móðgandi eða allt að því viðbjóðslegt innihald laga var öll framsetning svo nákvæm, dásamlega fögur eða hrikalega fyndin að ekki var annað hægt en að leiðast með inn í skuggaveröld þremenninganna og njóta,“ sagði gagnrýnandi Morgunblaðsins sem taldi tónleikana einn af merkari viðburðum Listahátíðar 2009.

Tónleikar Bob Mintzer og Stórsveitar Reykjavíkur voru líka lofaðir í hástert: „Öguð funheit hópspilamennska sveitarinnar var draumi líkust, og óstöðugum ærandi að tína til ótal glæst sólóframlög hvers og eins. Enda fékk ég ekki betur heyrt en að eldsnörp frammistaða kvöldsins væri hiklaust flytjandi utan stærri og veraldarvanari vettvangs.“  Þessi dómur, sem innihélt fjórar stjörnur, birtist einnig á síðum Morgunblaðsins.

Segja má að meira og minna allir viðburðir Listahátíðar í Reykjavík 2009 hafi fengið lofsamlega umsögn, þar á meðal fjöldi myndlistarsýninga sem prýddu hátíðina en margar þeirra standa enn yfir.

 

 

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica