Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

MIKIL ÞÁTTTAKA Í LISTAHÁTÍÐ Í ÁR

6/8/2009

  • Ljosmyndasafn
  • Maine, Girl on Bridge

Aðsókn á Listahátíð í Reykjavík 2009, sem haldin var dagana 15. - 31. maí, var framúrskarandi góð en uppselt var á nær allt sem í boði var. Jafnframt var mikil aðsókn á þá ókeypis viðburði sem voru í boði. Sjötíu viðburðir voru á hátíðinni og tóku um 500 innlendir og erlendir listamenn þátt að þessu sinni.

Þótt Listahátíð sé formlega lokið munu nokkrir myndlistarviðburðir halda áfram fram eftir sumri.

Í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum stendur sýningin Frá Unuhúsi til Áttunda strætis til 30. ágúst. Möguleikar – listasjóður Guðmundu Kristinsdóttur í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi stendur til 23. ágúst. Ljósmyndasýningin Lífið er ekki bara leikur, það er líka dans á rósum stendur til 30. ágúst í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og í Listasafni Reykjanesbæjar er sýning Olgu Bergmann, Í húsi sársaukans, opin til 17. ágúst. 


Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica