Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

DEBORAH VOIGT á lokatónleikum Listahátíðar í Reykjavík

31/5/2009

  • Deborah Voigt

 

Hin heimsþekkta bandaríska sópransöngkona Deborah Voigt kemur fram á lokatónleikum Listahátíðar í Reykjavík í kvöld, sunnudagskvöld. Voigt er tvímælalaust í fremstu röð dramatískra sóprana í heiminum í dag og á hátindi ferils síns.

Nýlega var sagt um hana í stórblaðinu New York Times að hún væri á hátindi ferils síns og undraverður túlkandi.  Hún er þekkt fyrir frábæra túlkun sína á verkum eftir  Strauss og  Wagner en hún hefur sungið aðalkvenhlutverkin í alls sex óperum Wagners og að auki fjölmörg hlutverk ítölsku óperubókmenntanna.

Efnisskrá einsöngstónleika Voigt á lokatónleikum Listahátíðar, sem hefjast í Háskólabíói kl. 20.00, er sérlega áhugaverð. Mun hún m.a. syngja lög eftir Giuseppe Verdi, Richard Strauss, Amy Beach, Ottorino Respighi og Ben Moore, auk laga úr söngleikjum Leonard Bernstein.

En það verður þó að öllum líkindum ekki bara Deborah Voigt sem verður stjarna kvöldsins í Háskólabíói því píanóleikari hennar Brian Zeger þykir með fremstu meðleikurum sem um getur. Zeger hefur starfað með listamönnum á borð við Itzhak Perlman, James Galway og Bryn Terfel. Hann er að auki listrænn stjórnandi við söngdeild Juilliard tónlistarháskólan og og nýverið tók hann við framkvæmdastjórastöðu Lindemann deildarinnar við Metrópólítan óperuna sem styður við ungt tónlistarfólk.

Listahátíð í Reykjavík sem staðið hefur frá 15. maí hefur verið einkar vel sótt en uppselt hefur verið á nær alla viðburði hátíðarinnar.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica