Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Lundapizzuveisla í Bjargtangavita alla helgina

29/5/2009

  • Sliceland opið Bjargtanga
  • Vitaopnun í Bjargtangavita
  • Sliceland Bjargtangi

"Þetta hefur gengið rosalega vel," sagði myndlistarmaðurinn Curver Thoroddsen um gjörning sinn, Sliceland – Vestustu pizzur í Evrópu, sem stendur nú yfir í Bjargtangavita á Vestfjörðum í viðtali við Sjónvarp mbl.is .Curver hefur breytt vitanum í pizzustað þar sem hann bakar lundapizzur í gríð og erg, gestum vitans til mikillar gleði. Þessi gjörningur Curvers er hluti af sýningunni Brennið þið, vitar! Listahátíð í vitum umhverfis Íslands. Gaman er að geta þess að þótt Listahátíð í Reykjavík sé brátt á enda mun Listahátíð í vitunum fjórum halda áfram til 3. ágúst.

„Það hafa bæði ferðamenn og heimamenn komið að skoða og flestum hefur litist vel á, og flestir hafa prófað lundapizzur. Að vísu komu tveir bandarískir dýraverndunarsinnar, og þeir vildu ekki þannig pizzu," segir Curver og hló í sama viðtali.

Ítarlegra viðtal við Curver má sjá í Morgunblaðinu í dag.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica