Verk BOB MINTZERS eru innblásin af Íslandi
Árið 2007 pantaði Stórsveit Reykjavíkur heila tónleikadagskrá hjá tónskáldinu, útsetjaranum og saxófónleikaranum Bob Mintzer frá New York, en hann hefur verið í fremstu víglínu stórsveitaheimsins undanfarin 30 ár og er ein skærasta stjarna hans í dag. Um er að ræða níu stór verk, einkum útsetningar byggðar á fornum íslenskum þjóðlögum, en einnig verk Mintzers innblásin af Íslandi.
Bob Mintzer hefur hlotið ein Grammy- verðlaun og verið tilnefndur 14 sinnum.
Efnisskráin er eftirfarandi:
Björt mey og hrein
- ísl. þjóðlag, úts. Bob Mintzer
Spirit of Iceland - Bob Mintzer
Ég hef selt hann Yngra-Rauð
- ísl. þjóðlag, úts. Bob Mintzer
Þingvellir - Bob Mintzer
Morgunbænin - Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson, úts. Bob Mintzer
Tilbrigði um Litlu Löpp – ísl. þjóðlag, úts. Bob Mintzer
Upptíningur – ísl. þjóðlag, úts. Bob Mintzer
Lag byggt á vísum Bergmanns – ísl. þjóðlag, úts. Bob Mintzer
Fyrri tónleikarnir verða í Fríkirkjunni í Reykjavík á laugardagskvöldið kl. 21.00 og þeir síðari í Ketilhúsinu á Akureyri á sunnudag kl. 17.00.

