BRIAN ZEGER er meðleikari DEBORUH VOIGT á lokatónleikum LISTAHÁTÍÐAR
Efnisskrá einsöngstónleika Deboruh Voigt á hvítasunnudag er sérlega áhugaverð. Þar mun þessi drottning dramatískra sóprana meðal annars syngja lög eftir Giuseppe Verdi, Richard Strauss, Amy Beach, Ottorino Respighi og Ben Moore, auk laga úr söngleikjum Leonard Bernstein.
En það verður að öllum líkindum ekki bara Deborah Voigt sem verður stjarna kvöldsins í Háskólabíói því píanóleikari hennar Brian Zeger þykir með fremstu meðleikurum sem um getur. Zeger hefur starfað með listamönnum á borð við Itzhak Perlman, James Galway og Bryn Terfel. Hann er að auki listrænn stjórnandi við söngdeild Juilliard tónlistarháskólans og stjórnandi söngdeildar Stean stofnunarinnar á Ravinia hátíðinni og nýverið tók hann við framkvæmdastjórastöðu Lindemann deildarinnar við Metrópólítan óperuna sem styður við ungt tónlistarfólk.
Dívan Deborah er þáttur um Deboruh Voigt sem verður á Rás 1 kl. 19.00 á laugardagskvöld 30. maí. Þátturin er í umsjón Ingveldar G. Ólafsdóttur.
Hlýða má á hljóðritun frá tónleikunum daginn eftir tónleikana, eða á annan í hvítasunnu, á Rás 1 kl. 16.07. Sjónvarpið tekur einnig upp tónleikana og mun sýna þátt um Deboruh Voigt síðar.
ATH. Miðasala Listahátíðar er opin lau 30. maí og sun 31. maí frá kl. 12.00 til 16.00.
Greiddir miðar verða afhentir í Háskólabíói klukkustund fyrir tónleika.

