Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

ROSDETVENSKIJ og POSTNIKOVA í Háskólabíói í kvöld

28/5/2009

  • Postnikova og Rosdestvenskij

Gennadij Rosdestvenskij hefur verið einn fremsti hljómsveitarstjóri Rússlands í næstum hálfa öld og vakið eftirtekt um allan heim fyrir sérstæðan stjórnunarstíl sinn. Hann stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíðartónleikum í Háskólabíói í kvöld. Rosdestvenskij var aðalstjórnandi Bolshoi-óperunnar í Moskvu um árabil og var náinn samstarfsmaður Sjostakovitsj og Prokofieffs, sem tileinkuðu honum verk sín. Hann heldur fáa tónleika á hverju ári og því er það stórviðburður í hvert sinn sem hann stígur á stjórnandapallinn. Það er enn fremur sérstakt ánægjuefni að á þessum fyrstu tónleikum meistarans á Íslandi hyggist hann stjórna Leníngrad-sinfóníu Sjostakovitsj, sem var samin á þeim miklu hörmungatímum þegar Þjóðverjar sátu um Leníngrad í 900 daga og um milljón manns lét lífið úr hungri, kulda og sprengjusárum. Á efnisskrá eru einnig píanókonsertarnir sem Mozart samdi í Vínarborg á hátindi ferils síns en þeir eru meðal helstu meistaraverka hans og áttu sinn þátt í því að gera píanókonsertinn að gjaldgengu formi í tónleikasölum heimsins. Einn sá fremsti er c-moll konsertinn K. 491, sem er bæði dramatískur og leyndardómsfullur, og sýnir bæði tjáningarríka og einlæga hlið þessa mikla meistara tónanna. Einleikari á tónleikunum er Viktoría Postnikova, sem hefur verið í fararbroddi rússneskra píanósnillinga um áratuga skeið. Hún hefur hljóðritað öll píanóverk Tsjajkovskíjs og Mússorgskíjs og hvarvetna hlotið frábæra dóma fyrir leik sinn. International Piano Magazine segir um Postnikovu: „Hún hefur ótrúlegt ímyndunarafl og skilning á tónlistinni og píanótækni hennar er fullkomin: fáguð, fíngerð, en einnig rússnesk og skapmikil þar sem það á við.“ Þess má geta að Postnikova er eiginkona Rosdestvenskíjs.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica