Uppselt á HJALTALÍN og TIGER LILLIES
Hljómsveitin Hjaltalín stendur fyrir sínum stærstu tónleikum frá upphafi fyrir tilstuðlan Listahátíðar í Reykjavík. Sérstök kammersveit var sett saman af þessu tilefni og kemur hún fram með Hjaltalín ásamt Daníel Bjarnasyni, sem fenginn var til þess að stjórna tónleiknum. Samtals flytja tuttugu manns tónlist Hjaltalín á sviðinu. Tónleikarnir eru í Íslensku óperunni í kvöld og hefjast þeir kl. 21.00. Uppselt er á tónleikana.
Það er einnig uppselt á tónleika breska tríósinsTiger Lillies sem verða í Íslensku óperunni á föstudagskvöld kl. 21.00. Á 20 ára ferli hafa þeir gefið út 21 geisladisk og haldið fjöldan allan af tónleikum, en efnisskráin á föstudagskvöld mun spanna allan ferilinn. Áhorfendur verða í það minnsta ekki sviknir um neitt.

