Kristján Guðmundsson hlýtur hin virtu Carnegie verðlaun
Myndlistamaðurinn Kristján Guðmundsson hlýtur hin virtu Carnegie verðlaun fyrir árið 2010, eina milljón sænskra króna, jafnvirði rúmlega 17 milljóna íslenskra króna. Margrét Þórhildur Danadrottning veitir verðlaunin í Kaupmannahöfn í september. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur myndlistamaður hlýtur aðalverðlaun þessara einna stærstu myndlistaverðlauna í heimi. Verðlaunin fær hann fyrir einstæð hljóðdempandi málverk sín, eins og segir í tilkynningu.
Tvenndarsýning Kristjáns og Hrafnkels Sigurðssonar stendur nú yfir á Listahátíð í Reykjavík í Listasafni Íslands.

