Beint í leiðarkerfi vefsins.
Franski tónlistarmaðurinn Yann Tiersen er einn frumlegasti brautryðjandi sinnar tónlistarkynslóðarog dáður fyrir marglaga og djúpa músík sína sem hann setur fram í heillandi og melódískumtónsmíðum.
Lesa meira
Eyrarrósina 2012, viðurkenningu fyrir afburða menningarverkefni á landsbyggðinni, hlýtur Safnasafnið á Svalbarðsströnd og veittu aðstandendur þess viðurkenningunni móttöku í dag laugardag við athöfn á Bessastöðum.
Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar afhenti verðlaunin. Fjölmennt var við athöfnina en auk afhendingarinnar kynnti Hrefna Haraldsdóttir stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík Eyrarrósina og Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra ávarpaði samkomuna. Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson sungu einnig nokkur lög við góðar undirtektir gesta.
Verðlaunin sem Safnasafnið hlýtur ásamt Eyrarrós í hnappagatið er fjárstyrkur að upphæð 1,5 milljón, verðlaunagripur eftir Steinunni Þórarinsdóttur auk flugmiða frá Flugfélagi Íslands. Önnur tilnefnd verkefni í ár voru Sjóræningjahúsið á Vatneyri við Patreksfjörð og tónlistarhátíðin Við Djúpið á Ísafirði og þau hljóta 250 þúsund króna verðlaun auk flugmiða.
Lesa meira
Listahátíð , í samvinnu við Hönnunarmiðstöð, efnir til opinnar samkeppni meðal hönnuða og myndlistarmanna um veggspjald Listahátíðar í Reykjavík 2012. Þátttakendur hafa frjálsar hendur um útfærslu en hugmyndin er að hún veki tilfinningu fólks fyrir Listahátíð í Reykjavík sem haldin er árlega á vorin.
Úrslit samkeppninnar verða tilkynnt í upptakti að Hönnunarmars, þann 20. mars 2012 og opnuð sýning á völdum tillögum við það tækifæri. Höfundur verðlaunatillögu hlýtur verðlaun að upphæð 500.000 krónur.
Nánari upplýsingar og samkeppnislýsing
Tillögum skal skilað undir dulnefni í Hönnunarmiðstöð Íslands fyrir kl. 12.00 fimmtudaginn 23. febrúar 2012.
Opin samkeppni um hönnun veggspjalds er nýbreytni hjá Listahátíð, en í yfir fjörutíu ára sögu hennar hefur fjöldi hönnuða og myndlistarmanna verið valinn til að hanna veggspjöld sem fangað hafa tíðarandann og sett svip sinn á borgina á vorin. Hafa þau verið með ýmsu móti og ýmist tengst viðburðum, listamönnum og verkum Listahátíðar eða verið sjálfstæð hönnun.
Lesa meira
Dagskrá Listahátíðar í Reykjavík í vor er óðum að taka á sig mynd og nú hefur verið staðfest að franski tónlistarmaðurinn Yann Tiersen er á leið til landsins með hljómsveit og spilar í Hörpu 31. maí.
Einnig verður spænsk-afríska söngkonan Buika með tónleika ásamt hljómsveit í Hörpu 3. júní næstkomandi.
Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður veitt í áttunda sinn á Bessastöðum laugardaginn 18. febrúar næstkomandi. Þrjú verkefni hafa verið valin úr metfjölda umsókna og hljóta tilnefningu til Eyrarrósarinnar í ár: Safnasafnið á Svalbarðsströnd, Sjóræningjahúsið á Vatneyri við Patreksfjörð.
Sjá fréttatilkynningu og umsagnir um verkefnin
Miðasalan á einleikstónleika rússneska píanóleikarans Arcadi Volodos sem fram fara
í Hörpu, Eldborg, sunnudaginn 20. maí 2012, rýkur af stað.
SMELLTU HÉR TIL AÐ KAUPA MIÐA
Arcadi Volodos er talinn einstakur meðal píanóleikara og þykja tækni hans og tjáning óviðjafnanleg. Hann sver sig í ætt við gömlu meistarana hvað varðar frelsi í leik og tónmyndun. Að margra mati virðist tækni hans engin takmörk sett og hann á jafn auðvelt með að spila á tilfinningastrengi með undursamlegum einfaldleika og næmni og að framkalla stórkostlegar flugeldasýningar.
TÓNSPOR er heitið á nýrri þáttaröð í umsjón Jónasar Sen, sem hefur göngu sína í Sjónvarpinu í kvöld. Þættirnir eru sex og er hver þáttur helgaður einu pari af tónskáldi og danshöfundi, sem unnu tón- og dansverk sem frumflutt voru á Listahátíð í Reykjavík í fyrra. Í þáttunum er fylgst með því hvernig verkin urðu til, frá fyrstu hugmynd til frumsýningar. Dagskrárgerð er í höndum Jóns Egils Bergþórssonar. Þættirnir eru samstarfsverkefni RÚV og Listahátíðar í Reykjavík.
Tónspor 1. þáttur: Sigríður Soffía Níelsdóttir og Þórarinn Guðnason - HORFA
Tónspor 2. þáttur: Hildigunnur Rúnarsdóttir og Steinunn Ketilsdóttir - HORFA
Tónspor 3. þáttur; Helena Jónsdóttir og Hilmar Örn Hilmarsson - HORFA
"Hversu ákaft lifði ég meðan á tónsmíðunum stóð; af hvílíkri áfergju sigldi ég yfir hið mikla haf ljóðlistarinnar, undir hlýjum geislum þeirrar elskandi sólar sem Shakespeare hafði tendrað“, skrifaði Berlioz fullur andagiftar þegar hann hafði lokið við að semja þetta einstaklega frumlega og forvitnilega verk sem Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt einsöngvurum og kórum flytja í fyrsta sinn á Íslandi á Listahátíð í vor.
Lesa meira