Beint í leiðarkerfi vefsins.
Mjög góð aðsókn var á viðburði Listahátíðar í ár sem voru yfir sextíu talsins með þátttöku hátt í sex hundruð listamanna, erlendra sem innlendra. Dagskráin var mjög fjölbreytt með tónleikum kvölds og morgna, stórtónleikum í Laugardalshöll, leikhús- og djassveislu, útileikhúsi fyrir börn og opnun yfir 20 ljósmyndasýninga. Upplestrar og tónleikar fóru fram í vinnustofum myndlistarmanna og á heimilum rithöfunda þar sem hvert sæti var setið. Hafa viðburðir hátíðarinnar hlotið mjög jákvæð viðbrögð áhorfenda og gagnrýnenda, sem lofað hafa dagskrána í ár eins og fjölmargir góðir dómar bera vitni um.
Lesa meiraSkrifstofa Listahátíðar í Reykjavík verður lokuð í sumar frá og með 8. júlí til 9. ágúst. Ef þið eigið brýn erindi vinsamlegast hafið samband við Hrefnu Haraldsdóttur, stjórnanda, í hrefna@artfest.is og/eða Guðrúnu Norðfjörð, verkefnisstjóra, í gudnord@artfest.is
Lesa meiraÍ tilefni Listahátíðar í Reykjavík 2010 kom hópur erlendra blaðamanna til Reykjavíkur. Að komu þeirra stóðu auk Listahátíðar; Höfuðborgarstofa, Ferðamálastofa og Útflutningsráð. Meðal fjölmiðla sem blaðamennirnir skrifa fyrir eru bandarísku blöðin The New York Post og Art Newspaper, hið austurríska Der Standard, Art das Kunstmagasin og Financial Times í Þýskalandi, Pohjalainen í Finnlandi og Ritzau fréttastofan í Danmörku.
Listahátíð í Reykjavík hefur undanfarin ár lagt áherslu á að flytja verkefni á dagskrá hátíðarinnar út á landsbyggðina. Árið 2009 voru settar upp fjórar myndlistarsýningar í jafnmörgum vitum í öllum landshlutum og á Listahátíð 2010 verður hluti sýningarinnar Raunveruleikatékk fluttur úr 101 Reykjavík í dreifðari byggðir landsins í samvinnu við Landsvirkjun.
Á Listahátíð í ár var áhersla lögð á ljósmyndir með fjölda ljósmyndasýninga í galleríum, söfnum og á götum úti. Standa flestar þeirra fram á sumar þótt formlegri dagskrá hátíðarinnar sé lokið. Sýningin Raunveruleikatékk verður í miðborginni til 28. júní, þegar hluti hennar verður tekinn niður og færður út á landsbyggðina.
Starf framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík var auglýst til umsóknar. Ráðningartími er frá 1. september 2010. Starfið er fólgið í fjölþættum undirbúningi hverrar hátíðar og öðrum þeim verkefnum sem unnin eru á vegum Listahátíðar. Umsóknarfrestur rann út 25. júní 2010.
Nýliðin Listahátíð hlaut frábærar viðtökur og hlutu flestir viðburðir hátíðarinnar afar lofsamlega umfjöllun og stjörnuregn gagnrýnenda. Hér er hægt að lesa brot úr dómum sem viðburðir hátíðarinnar hlutu.
Lesa meira
Sýningar standa yfir á tveimur leiksýningum á Listahátíð sem hafa hlotið frábærar viðtökur og dóma. Í heimilistækjasirkusnum Af ástum manns og hrærivélar túlka Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Kristján Ingimarsson íslensk hjón á óborganlega hátt.
í Hr. Potti og ungfrú Lok eru það búsáhöldin sem lifna við í tónævintýri fyrir alla fjölskylduna, líka þá allra yngstu. Í sýningunni er ástarsaga Hr. Potts og ungfrú Loks sögð með gáskafullum leik og lifandi tónlist, þar sem foxtrott, charleston, djass og tangó koma við sögu.
Listahátíð lýkur á laugardaginn en velflestar ljósmyndasýningar á dagskrá hátíðarinnar halda áfram í galleríum og sýningarsölum. Þó lýkur tveimur ljósmyndasýningum um helgina, Fyrirmyndum Ólafar Nordal í Listasafni ASÍ við Freyjugötu og Núna, samsýningu finnskra og íslenskra samtímaljósmyndara í Norræna húsinu.
Á morgun, laugardag, leiðir Guðni Tómasson listsagnfræðingur og útvarpsmaður áhugasama um útiljósmyndasýninguna Raunveruleikatékk og hefst gönguferðin kl. 14 við Nasa á Austurvelli. Á sunnudaginn kl. 14 leiðir Halldór Björn Runólfsson gesti um sýningu Cindy Sherman, Untitled Film Stills, í Listasafni Íslands. Á laugardag frá kl. 13-16 býðst fjölskyldum að smíða sína eigin myndavél í fjölskyldusmiðju á Kjarvalsstöðum, undir leiðsögn Péturs Thomsen. Nánari upplýsingar hér.
Lokapunktur Listahátíðar verður settur á laugardaginn klukkan fimm með glæsilegri óperuveislu Kristins Sigmundssonar, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Óperukórsins í Reykjavík.
Þetta eru fyrstu einsöngstónleikar Kristins með Sinfóníunni um árabil, og á efnisskránni eru meðal annars aríur úr Rakaranum í Sevilla, Don Carlo og Hollendingnum fljúgandi. Hátt í tvö hundruð manns taka þátt í tónleikunum, hljómsveitarstjóri er Petri Sakari og kórstjóri Garðar Cortes. Löngu er orðið uppselt á tónleikana.
Við vekjum athygli á tímasetningu tónleikanna, þeir hefjast klukkan 17 í Háskólabíói.
Lesa meira
Þátttakendur eru Berglind María Tómasdóttir, flautuleikari; Anna S. Þorvaldsdóttir, tónskáld; Daníel Bjarnason, tónskáld; Davíð Brynjar Franzson, tónskáld; Halldór Úlfarsson, hljóðfærahönnuður og myndlistarmaður og Njörður Sigurjónsson, doktor í menningarstjórnun.
Umsjón hefur Elísabet Indra Ragnarsdóttir.
Nýliðin Listahátíðarhelgi var stútfull af spennandi viðburðum og bar þar hæst spænsk/marókkósku sveitina Orquesta Chekara Flamenca, sem troðfylltu Íslensku óperuna í gærkvöld og var fagnað með standandi lófataki. Listahátíðargestir áttu margar góðar stundir á húslestrum rithöfunda sem opnuðu heimili sín og garða í góða veðrinu.
Ágúst Ólafsson barítónsöngvari og Gerrit Schuil píanóleikari hafa slegið í gegn með morguntónleikaröð sína í Fríkirkjunni. Enginn íslenskur söngvari hefur áður tekist á við heildarflutning þessara söngflokka og hafa þeir hlotið frábærar viðtökur áhorfenda og lofsamlega dóma fyrir flutning sinn og túlkun. Lokatónleikar Ágústs og Gerrits eru á sunnudaginn klukkan 11.00, þar sem þeir flytja Der Schwanengesang, Svanasöng, en þeir fluttu Malarastúlkuna fögru og Vetrarferðina síðustu tvo sunnudagsmorgna.
Ríkisútvarpið tekur upp marga af viðburðum Listahátíðar í Reykjavík og hefur einnig gert þeim skil í fjölmörgum þáttum.
Á þessari slóð er safnað saman tónleikum og þáttum sem tengjast Listahátíð í Reykjavík og sem hægt er að hlusta á á netinu.
http://dagskra.ruv.is/listahatid/
Í tilefni Listahátíðar í Reykjavík 2010 hefur hópur erlendra blaðamanna dvalið í Reykjavík undanfarna daga. Að komu þeirra standa auk Listahátíðar; Höfuðborgarstofa, Ferðamálastofa og Útflutningsráð. Meðal fjölmiðla sem blaðamennirnir skrifa fyrir eru bandarísku blöðin The New York Post og Art Newspaper, hið austurríska Der Standard, Art das Kunstmagasin og Financial Times í Þýskalandi, Pohjalainen í Finnlandi og Ritzau fréttastofan í Danmörku.
Um helgina verður margt að gerast á Listahátíð. Harmónikkuæringinn Kimmo Pohjonen heldur tónleika í kvöld, 21. maí, kl. 21 í NASA. Kimmo fer ótroðnar slóðir í tónlistarsköpun sinni og opnar nýjar víddir fyrir áhorfendum í harmónikkuleik. Á laugardag og sunnudag verða haldnir 12 vinnustofutónleikar vítt og breitt um borgina. Þar gefst gestum færi á að hlýða á ýmiss konar tónlist í vinnustofum myndlistarmanna. Hér er hægt að lesa meira um þessi skemmtilegu stefnumót.
Lesa meira
Glöggir vegfarendur hafa rekið augun í ljósmyndir sem prýða ýmis grindverk og veggi miðborgar Reykjavíkur. Þarna er að finna ljósmyndir af sýningunni Raunveruleikatékk á Listahátíð í Reykjavík og opnuð var síðastliðinn laugardag með leiðsögn Æsu Sigurjónsdóttur um sýninguna.
Lesa meiraMiðasala er á www.listahatid.is,
í síma 552 8588 og á skrifstofu hátíðarinnar í Gimli, Lækjargötu 3.
Opnunartímar yfir hátíðina, 12. maí - 5. júní, eru sem hér segir:
Virka daga 10-16 og á viðburðunum.
Laugardaga, sunnudaga og helgidaga 12-16 og á viðburðunum.
Miðasala og afhending greiddra miða flyst á viðburðastaði klukkustund áður en viðburður hefst.
Ekki er hægt að kaupa miða á netinu síðustu tvo tímana fyrir viðburð.
Símanúmer miðasölustjóra er 898-9981.
Miðborgin ólgar af lífi um helgina, sem er stútfull af spennandi viðburðum. Hátíðargestir eru sérstaklega boðnir velkomnir á opnun útiljósmyndasýningarinnar Raunveruleikatékk á laugardaginn kl. 13 en sýningin er opnuð með leiðsögn Æsu Sigurjónsdóttur sýningarstjóra og hefst hún við Landsímahúsið við Austurvöll.
Lesa meira
Á setningu Listahátíðar í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi í dag var fluttur margbrotinn gjörningur Helenu Jónsdóttur í flutningi um 60 íslenskra listamanna og ljósmyndainnsetning David Byrne í gluggum Hafnarhúss var opnuð formlega. Hrefna Haraldsdóttir, stjórnandi hátíðarinnar flutti ávarp og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri setti hátíðina.
Síðastliðið sunnudagskvöld var hinn árlegi þáttur Listahátíðar í Reykjavík frumsýndur en þar var dagskrá hátíðarinnar kynnt ítarlega af Felix Bergssyni. Þeir sem misstu af þættinum þurfa ekki að örvænta því endursýningar eru fyrirhugaðar miðvikudaginn 5. maí kl. 00.25 og sunnudaginn 9. maí kl. 13.50, strax á eftir Silfri Egils. Um dagskrárgerð sá Jón Egill Bergþórsson.
Lesa meira
Í Sjónvarpinu á sunnudagskvöld er kynningarþáttur um Listahátíð í Reykjavík. Þar kynnumst við nánar erlendum listamönnum sem koma á hátíðina í vor, kíkjum á æfingar vítt og breitt um borgina og fáum forsmekk af fjölbreytilegum atriðum.
Ekki missa af kynningarþætti Listahátíðar á dagskrá Sjónvarpsins sunnudagskvöldið 2. maí klukkan 19.35.
Dagskrárbæklingi Listahátíðar í Reykjavík er dreift í hús í dag miðvikudaginn 28. apríl. Þeir sem ekki geta beðið eftir að skoða hann geta hlaðið niður rafrænni útgáfu hans hér. Á forsíðu bæklingsins er einkennismynd Listahátíðar í ár, Afi, eftir ljósmyndarann Friðgeir Helgason.
Í fyrra var í fyrsta sinn efnt til á Listahátíð lítilla en mjög vinsælla viðburða, húslestra og stofutónleika í miklu návígi listamanna og gesta. Við höldum áfram á þeirri braut, húslestrarnir verða heima í stofu hjá höfundunum. Í ár verða stofutónleikarnir í formi vinnustofutónleika og fara fram á vinnustofum myndlistarmanna.
Lesa meira
Miðasala á viðburði Listahátíðar í Reykjavík hófst í gær að loknum blaðamannafundi þar sem dagskrá hátíðarinnar var kynnt. Miðasalan tók strax kipp og er ljóst að fólk ætlar ekki að missa af þeim frábæru viðburðum sem verða á hátíðinni í vor. Sjá alla viðburði hér.
Lesa meiraÍtarleg umfjöllun um ljósmyndasýningar Listahátíðar í Reykjavík er í mars útgáfu af LIST, Icelandic Art News. Jón Proppé fjallar um þær sýningar sem eru á dagskrá hátíðarinnar í vor.
Lesa meira
Einkennismynd Listahátíðar í ár ber titilinn afi og er eftir ljósmyndarann Friðgeir Helgason.
Lesa meira
Á blaðamannafundi í dag klukkan 14.00 kynnti Hrefna Haraldsdóttir, stjórnandi hátíðarinnar dagskrá Listahátíðar í Reykjavík sem hefst 12. maí næstkomandi.
Lesa meira
Á Listahátíð í Reykjavík í vor býðst einstakt tækifæri til að sjá rómuðustu ástarsögu allra tíma, Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare í stórbrotinni uppfærslu litháíska leikstjórans Oskaras Koršunovas á Stóra sviði Borgarleikhússins. Sala er hafin hér.
Lesa meira
Amadou & Mariam koma með vorið til Reykjavíkur og fylla Laugardalshöllina af fjöri þann 12. maí á opnunartónleikum Listahátíðar í Reykjavík. Parið, sem vakið hefur heimsathygli fyrir einstakan og líflegan tónlistarbræðing sinn, kemur nú hingað til lands með hljómsveit og sannkallaða heimstónlistarstemmningu.
Lesa meira
„Magnaður kraftur og hrífandi innsæi“ eru orð blaðamanns Daily Telegraph um samstarf Leif Ove Andsnes, Christian Tetzlaff og Tanja Tetzlaff. Þessir merku einleikarar og vinir hafa ástríðu fyrir kammertónlist og koma fram reglulega saman. Á tónleikunum á Listahátíð í Reykjavík leika þau rómantíska og tilfinningaríka efnisskrá sem er tileinkuð Robert Schumann, en í ár eru 200 ár liðin frá fæðingu hans.
Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í Íslensku óperunni þann 14. mars. Meðal verðlaunahafa var Daníel Bjarnason, höfundur ársins fyrir tónverkin á plötu sinni Processions og einnig fyrir tónverk ársins, Bow to string. Hjaltalín hlaut verðlaun fyrir poppplötu ársins, Terminal söngkona Hjaltalín, Sigríður Thorlacius, hlaut verðlaunin rödd ársins.
Allir þessir tónlistarmenn tóku þátt í frábærum tónleikum Hjaltalín sem Daníel Bjarnason stjórnaði svo eftirminnilega á Listahátíð í Reykjavík sl. vor.
Listahátíð óskar öllum verðlaunahöfum til hamingju.
Lesa meira
Listahátíð í Reykjavík var haldin í fyrsta sinn sumarið 1970. Frá upphafi hefur hátíðin verið í fararbroddi í íslensku menningarlífi og verið frumkvöðull í því að kynna íslensku þjóðina fyrir listamönnum á heimsmælikvarða.
Lesa meira
Menningarverðlaun DV voru afhent þann 10. mars sl. og hlaut Daníel Bjarnason verðlaun fyrir árangur sinn á tónlistarsviðinu árið 2009. Á því ári stjórnaði hann mörgum glæsilegum tónleikum, m.a. Hjaltalín og strengjasveit sem haldnir voru í Íslensku Óperunni á Listahátíð sl. vor. Daníel stjórnaði einnig Sinfóníuhljómsveit Íslands og gaf út eigin tónsmíðar auk þess að taka upp og útsetja verk ýmissa listamanna.
Sjá frétt um verðlaunin á vef dv.is Lesa meira
Tilnefningar til menningarverðlauna DV voru kynntar í síðustu helgarútgáfu blaðsins og er mikið gleðiefni að í tónlistarflokknum eru margir tilnefndir sem komu fram á Listahátíð 2009.
Lesa meira
Listahátíð í Reykjavík verður haldin dagana 12. maí til 5. júní. Hátíðin framundan er blönduð hátíð þar sem allar listgreinar njóta sín; tónlist, leiklist, dans, bókmenntir og í sýningarsölum verður lögð áhersla á ljósmyndir. Viðburðir hátíðarinnar fara fram jafnt á hefðbundnum sem og óhefðbundnum stöðum og þar mætast listamenn þvert á listgreinar og landamæri.
Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna hafa verið kynntar og er Hjaltalín með 5 tilnefningar í ár, m.a. sem tónlistarflytjandi ársins fyrir tónleika sína á Listahátíð í Reykjavík 2009. Tónleikarnir slógu rækilega í gegn en þar komu saman í fyrsta sinn Hjaltalín og Daníel Bjarnason, en hann er einmitt tilnefndur í nokkrum flokkum, m.a. fyrir tónverk ársins og sígilda plötu ársins.
Lesa meira
Eyrarrósin 2010 kom í hlut tónlistarhátíðarinnar Bræðslunnar á Borgarfirði eystra og veittu aðstandendur hennar viðurkenningunni móttöku í dag við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.
Áskell Heiðar og Magni Ásgeirssynir, forsvarsmenn Bræðslunnar tóku við viðurkenningunni úr hendi Dorrit Moussaieff, verndara Eyrarrósarinnar. Fjölmennt var við athöfnina...
Lesa meira
Vorið er tími Listahátíðar og það er óhætt að byrja að hlakka til því dagskrá Listahátíðar í ár verður fjölbreytileg, nýstárleg og klassísk og hefðbundnir og óhefðbundnir staðir verða vettvangur listarinnar í vor.
Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent á Bessastöðum síðdegis í dag og er það í sjötta sinn sem viðurkenningin er veitt.
Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands.
Þrjú verkefni hafa verið tilnefnd úr hópi umsækjenda: tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra, Eiríksstaðir í Haukadal og Skjaldborg - heimildarmyndahátíð á Patreksfirði.
Lesa meira
Íslensku vefverðlaunin verða afhent 12. febrúar næstkomandi. Þau eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins og hafa að markmiði sínu að hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða. Listahátíð í Reykjavík er komin í úrslit í flokki bestu sölu-og kynningarvefja fyrirtækis með færri en 50 starfsmenn. Sjá nánar um tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna hér.
Sendiráð Íslands í Helsinki stóð á dögunum fyrir kynningu á Listahátíð í Reykjavík. Kynningin var haldin í sendiherrabústaðnum í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík.
Lesa meira
Listahátíð og Endurmenntun Háskóla Íslands efna til samstarfs um námskeiðahald í tengslum við viðburði hátíðarinnar í vor. Hrefna Haraldsdóttir, stjórnandi Listahátíðar og Kristín Jónsdóttir, endurmenntunarstjóri skrifuðu í vikunni undir samstarfssamning þess efnis.
Spænsk/íslenska listamannatvíeykið Ólafur Ólafsson og Libia Pérez de Silva de Castro voru í liðinni viku valin sem fulltrúar Íslands á Feneyjatvíæringnum 2011. Þau hafa starfað saman að listsköpun frá árinu 1996 og vinna nær alltaf með viðfangsefni úr því umhverfi og kringumstæðum þess staðar og samfélags sem sýning verka þeirra fer fram.
Lesa meira
Þau sorgartíðindi bárust í dag að amerísk-kanadíska söngvaskáldið Lhasa De Sela væri látin aðeins 37 ára að aldri eftir baráttu við brjóstakrabbamein undanfarin misseri.
Melodia, plata kammerkórsins Carmina er ein besta plata síðasta árs að mati Gramophone, stærsta og virtasta tónlistarblaðs Evrópu. Kammerkórinn Carmina mun halda tónleika í Kristskirkju á Listahátíð í Reykjavík í vor, og flytja þar tónlist eftir meistara endurreisnarinnar, Josquin, Tallis og fleiri.
Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2009 féllu í skaut Víkings Heiðars Ólafssonar píanóleikara sem tók á móti þeim við hátíðlega athöfn í Iðnó þann 5. janúar sl. Víkingur Heiðar fékk áletraðan verðlaunagrip og verðlaunafé að upphæð 1 milljón króna. Á lofuðum einleikstónleikum hans á síðustu Listahátíð flutti Víkingur Heiðar eigin sönglagaumskrifanir eftir Sigvalda Kaldalóns, Emil Thoroddsen og Pál Ísólfsson, í bland verk Bach, Debussy, Chopin og fleiri. Listahátíð óskar Víkingi Heiðari til hamingju með verðlaunin.