Beint í leiðarkerfi vefsins.
Nú getur þú glatt þína nánustu með því að gefa gjöf sem lifir lengi og hlakka má til. Listahátíð í Reykjavík gefur nú út í fyrsta sinn fyrir jólin sérprentuð gjafakort. Gjafakortin gilda sem greiðsla upp í miða á viðburði hátíðarinnar sem fram fer dagana 12. maí til 5. júní 2010.
Listahátíð í Reykjavík óskar landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og þakkar ánægjulegar stundir á árinu sem er að líða. Sjáumst á Listahátíð í vor!
Listahátíð í Reykjavík hefur flutt skrifstofur sínar í nýtt húsnæði í Gimli við Lækjargötu 3
þar sem Ferðamálastofa var áður til húsa. Listahátíð í Reykjavík snýr þar með aftur á æskustöðvarnar því hún hóf starfsemi sína árið 1969 í einu herbergi í Gimli. Fyrsta Listahátíðin var haldin vorið 1970 og fagnar Listahátíð því 40 ára afmæli vorið 2010.
Nokkur verkefni frá síðustu Listahátíð hafa fengið framhaldslíf og birtast nú á ný í ýmsum myndum. Fyrst má nefna að kvikmynd Gjörningaklúbbsins Vitaskuld, Auðvitað! um gjörninginn sem fluttur var í Garðskagavita á Listahátíð í vor sem hluti verkefnisins Brennið þið vitar var sýnd í Regnboganum sem hluti af Sequences myndlistarhátíðinni nýverið.
Lesa meira
Óperusérfræðingurinn Fred Plotkins og höfundur bókarinnar Opera 101 lét þau orð falla í viðtali við New York Times nýverið að uppfærsla Niflungahringsins á Listahátíð á Íslandi sé ein sú allra besta sem hann hefur séð.
Þorsteinn frá Hamri, einn höfundanna sem þátt tóku í húslestrum sem fram fóru á Listahátíð í vor, hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti honum verðlaunin í Ketilhúsinu á Akureyri.
Starfsfólk Listahátíðar er búið að koma sér vel fyrir í Gimli og bauð samstarfsaðilum og velunnurum að líta við í jólaösinni í tilefni af því.
Á fulltrúaráðsfundi Listahátíðar sem fram fór 23. október síðastliðinn voru fluttar skýrslur formanns stjórnar Listahátíðar, Ingu Jónu Þórðardóttur og Hrefnu Haraldsdóttur, listræns stjórnanda. Hér eru þær á mynd með Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarstjóra og Katrínu Jakobsdóttur, menntamálaráðherra.
Steinunn Þórhallsdóttir hefur verið ráðin markaðs- og kynningarstjóri Listahátíðar í Reykjavík og mun hún hefja störf 1. desember næstkomandi. Umsóknarfrestur um stöðuna rann út 1. október síðastliðinn og sóttu tæplega sextíu manns um.
Lesa meiraListahátíðarsýningarnar Brennið þið, vitar! eru til umfjöllunar í ágúst/septemberhefti DAMN° undir yfirskriftinni Light in the Darkness.
Sýningarnar stóðu frá setningarhelgi Listahátíðar um miðjan maí til mánudagsins 3. ágúst í fjórum vitum, einum í hverjum landshluta; Garðskagavita, Bjargtangavita, Kópaskersvita og Dalatangavita.
Smelltu hér til að hlaða niður greininni (455 KB).
Listahátíð í Reykjavík auglýsti nýverið eftir markaðs- og kynningarstjóra. Óskað er eftir hugmyndaríkum, skipulögðum og öflugum einstaklingi með áhuga og þekkingu á listum og menningu. Umsóknum skal skila fyrir 1. október 2009.
Lesa meira
Fyrir utan þátttöku um 500 listamanna, framúrskarandi aðsókn og almenna ánægju með Listahátíð í Reykjavík 2009 birtist hver fimm stjörnu dómurinn á fætur öðrum á forsíðu Morgunblaðsins.
Hér sjáum við brot úr þeim:
"Áheyrendur bókstaflega öskruðu af hrifningu. Ekki er annað hægt en að gefa svona tónleikum fimm stjörnur, helst stjörnuþoku" var sagt um lokatónleika Listahátíðar með sópransöngkonunni Deboruh Voigt í Morgunblaðinu.
Lesa meira
Aðsókn á Listahátíð í Reykjavík 2009, sem var haldin dagana 15. - 31. maí, var framúrskarandi góð en uppselt var á nær allt sem í boði var og mikil aðsókn á ókeypis viðburði. En þótt Listahátíð sé formlega lokið munu nokkrir myndlistarviðburðir halda áfram fram eftir sumri.
Sjá allar myndlistarsýningar á Listahátíð 2009 hér.
Lesa meira
Skrifstofur Listahátíðar í Reykjavík eru fluttar í Gimli við Lækjargötu 3.
Má segja að hátíðin sé komin aftur á æskustöðvarnar því hún hóf starfsemi sína árið 1969 í einu herbergi í Gimli.
Fyrsta Listahátíðin var haldin vorið 1970 og fagnar Listahátíð því 40 ára afmæli vorið 2010.
Hljómsveitin amiina, í samstarfi við Kraum tónlistarsjóð, heldur ferna tónleika við sjávarsíðuna í lok júlí. Spilað verður í hvalasafni, Bláu kirkjunni á Seyðisfirði og í Sauðanesvita og Dalatangavita.
Lesa meira
Hljómsveitin Amiina, sem kom fram á Stofutónleikum Listahátíðar í vor, var með stofutónleika í Garðskagavita sunnudaginn 28. júní, í tilefni Sólseturshátíðar sem sveitafélagið Garður stóð að. Þetta voru fyrstu tónleikar Amiinu eftir tónleikaferð þeirra um Ítalíu en því ferðalagi lauk í síðustu viku.
Lesa meira
Á rabbfundi fulltrúaráðs Listahátíðar í Reykjavík, sem haldinn var þriðjudaginn 16. júní í Iðusölum, kom fram mikil ánægja með nýliðna Listahátíð. Gerður var góður rómur að þeirri fjölbreytni sem einkenndi dagskrána í ár, sem fundarmenn töldu að endurspeglaðist m.a. í mjög breiðum áhorfendahópi.
Lesa meira
Myndlistarmaðurinn Ásdís Sif Gunnarsdóttir og tónlistarmaðurinn Kristín Anna Valtýsdóttir standa fyrir uppákomu í tilefni sumarsóstöðuhátíðar n.k. sunnudag 21. júní og sýningar þeirrar fyrrnefndu sem nú stendur í Kópaskersvita en sú sýning er hluti af Brennið, þið vitar! Listahátíð í vitum umhverfis Ísland sem opnuð var á Listahátíð í Reykjavík 17. maí s.l.
Lesa meira
Á vefsíðu söngkonunnar Lhasa de Sela er minnst sérstaklega á Listahátíðartónleikana á Íslandi. Upphaflega stóð til að þeir yrðu einir en vegna þess hve fljótt þeir seldust upp var ákveðið að efna til aukatónleika daginn eftir. Þar er farið fögrum orðum um gestrisni Íslendinga og sagt: „Listahátíð í Reykjavík eru vinsamlegustu og bestu gestgjafarnir sem við höfum nokkru sinni sótt heim. Starfsfólkið þar lagði sérstaka lykkju á leið sína til þess við mættum komast að raun um hversu landið þeirra er fallegt.”
Lesa meira
Tónlist Sunleif Rasmussen í óperunni Í Óðamansgarði og lýsing Lárusar Björnssonar eru tilnefndar til Grímunnar, íslensku leiklistarverðlaunanna sem afhent verða í Borgarleikhúsinu 16. júní. Óperan var sett upp í nýrri sviðsetningu Listahátíðar í Reykjavík, Tjóðpallsins í Færeyjum og Þjóðleikhússins á Listahátíð 2009 og voru sýningarnar alls tvær.
Í Óðamansgarði er fyrsta færeyska óperan. Hún var frumsýnd í Þórshöfn haustið 2006 en höfundur hennar, Sunleif Rasmussen, hlaut Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2002.
Lesa meira
Listahátíðarsýningin Möguleikar - Listasjóður Guðmundu Kristinssdóttur stendur nú yfir í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi. Á sýningunni eru verk eftir listakonur sem hafa hlotið viðurkenningu úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur. Listamaðurinn Erró stofnaði sjóðinn árið 1997 í minningu frænku sinnar í því skyni að veita árlega framlag til viðurkenningar og eflingar á listasköpun kvenna sem hafa skarað fram úr.
Listamenn sem hlotið hafa viðurkenningu úr sjóðnum eru Ólöf Nordal, Finna Birna Steinsson, Katrín Sigurðardóttir, Gabríela Friðriksdóttir, Sara Björnsdóttir, Þóra Þórisdóttir, Guðrún Vera Hjartardóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir og Hulda Stefánsdóttir. Auk þess bættist við einn verðlaunahafi við opnun sýningarinnar sem er myndlistarkonan Margrét Blöndal.
Lesa meira
Hin heimsþekkta bandaríska sópransöngkona Deborah Voigt kemur fram á lokatónleikum Listahátíðar í Reykjavík í kvöld, sunnudagskvöld. Voigt er tvímælalaust í fremstu röð dramatískra sóprana í heiminum í dag og á hátindi ferils síns.
Nýlega var sagt um hana í stórblaðinu New York Times að hún væri á hátindi ferils síns og undraverður túlkandi. Hún er þekkt fyrir frábæra túlkun sína á verkum eftir Strauss og Wagner en hún hefur sungið aðalkvenhlutverkin í alls sex óperum Wagners og að auki fjölmörg hlutverk ítölsku óperubókmenntanna.
Efnisskrá einsöngstónleika Voigt á lokatónleikum Listahátíðar, sem hefjast í Háskólabíói kl. 20.00, er sérlega áhugaverð. Mun hún m.a. syngja lög eftir Giuseppe Verdi, Richard Strauss, Amy Beach, Ottorino Respighi og Ben Moore, auk laga úr söngleikjum Leonard Bernstein.
En það verður þó að öllum líkindum ekki bara Deborah Voigt sem verður stjarna kvöldsins í Háskólabíói því píanóleikari hennar Brian Zeger þykir með fremstu meðleikurum sem um getur.
ATH. Hljóðritun frá tónleikunum má hlýða á á Rás 1 kl. 16.07 á annan í hvítasunnu. Kynnir er Arndís Björk Ásgeirsdóttir.
Lesa meira
Árið 2007 pantaði Stórsveit Reykjavíkur heila tónleikadagskrá hjá tónskáldinu, útsetjaranum og saxófónleikaranum Bob Mintzer frá New York, en hann hefur verið í fremstu víglínu stórsveitaheimsins undanfarin 30 ár og er ein skærasta stjarna hans í dag. Um er að ræða níu stór verk, einkum útsetningar byggðar á fornum íslenskum þjóðlögum, en einnig verk Mintzers innblásin af Íslandi.
Lesa meira
Efnisskrá einsöngstónleika Deboruh Voigt á hvítasunnudag er sérlega áhugaverð. Þar mun þessi drottning dramatískra sóprana meðal annars syngja lög eftir Giuseppe Verdi, Richard Strauss, Amy Beach, Ottorino Respighi og Ben Moore, auk laga úr söngleikjum Leonard Bernstein.
En það verður að öllum líkindum ekki bara Deborah Voigt sem verður stjarna kvöldsins í Háskólabíói því píanóleikari hennar Brian Zeger þykir með fremstu meðleikurum sem um getur. Zeger hefur starfað með listamönnum á borð við Itzhak Perlman, James Galway og Bryn Terfel. Hann er að auki listrænn stjórnandi við söngdeild Juilliard tónlistarháskólans og nýverið tók hann við framkvæmdastjórastöðu Lindemann deildarinnar við Metrópólítan óperuna.
ATH. Miðasala Listahátíðar er opin lau 30. maí og sun 31. maí frá kl. 12.00 til 16.00.
Lesa meira
„Þetta hefur gengið rosalega vel," sagði myndlistarmaðurinn Curver Thoroddsen um gjörning sinn, Sliceland – Vestustu pizzur í Evrópu, sem stendur nú yfir í Bjargtangavita á Vestfjörðum í viðtali við Sjónvarp mbl.is .Curver hefur breytt vitanum í pizzustað þar sem hann bakar lundapizzur í gríð og erg, gestum vitans til mikillar gleði. Þessi gjörningur Curvers er hluti af sýningunni Brennið þið, vitar! Listahátíð í vitum umhverfis Ísland. Gaman er að geta þess að þótt Listahátíð í Reykjavík sé brátt á enda mun Listahátíð í vitunum fjórum halda áfram til 3. ágúst.
„Það hafa bæði ferðamenn og heimamenn komið að skoða og flestum hefur litist vel á, og flestir hafa prófað lundapizzur. Að vísu komu tveir bandarískir dýraverndunarsinnar, og þeir vildu ekki þannig pizzu," segir Curver og hló í sama viðtali.
Lesa meira
Gennadij Rosdestvenskij hefur verið einn fremsti hljómsveitarstjóri Rússlands í næstum hálfa öld og vakið eftirtekt um allan heim fyrir sérstæðan stjórnunarstíl sinn. Hann stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíðartónleikum í Háskólabíói í kvöld. Rosdestvenskij var aðalstjórnandi Bolshoi-óperunnar í Moskvu um árabil og var náinn samstarfsmaður Sjostakovitsj og Prokofieffs, sem tileinkuðu honum verk sín. Hann heldur fáa tónleika á hverju ári og því er það stórviðburður í hvert sinn sem hann stígur á stjórnandapallinn. Á þessum fyrstu tónleikum meistarans á Íslandi stjórnar hann Leníngrad-sinfóníu Sjostakovitsj, sem var samin á þeim miklu hörmungatímum þegar Þjóðverjar sátu um Leníngrad í 900 daga og um milljón manns lét lífið úr hungri, kulda og sprengjusárum. Á efnisskrá eru einnig píanókonsertarnir sem Mozart samdi í Vínarborg á hátindi ferils síns. Einleikari á tónleikunum er Viktoría Postnikova, sem hefur verið í fararbroddi rússneskra píanósnillinga um áratuga skeið.
Hljómsveitin Hjaltalín stendur fyrir sínum stærstu tónleikum frá upphafi fyrir tilstuðlan Listahátíðar í Reykjavík. Sérstök kammersveit var sett saman af þessu tilefni og kemur hún fram með Hjaltalín ásamt Daníel Bjarnasyni, sem fenginn var til þess að stjórna tónleiknum. Samtals flytja tuttugu manns tónlist Hjaltalín á sviðinu. Tónleikarnir eru í Íslensku óperunni í kvöld og hefjast þeir kl. 21.00. Uppselt er á tónleikana.
Það er einnig uppselt á tónleika breska tríósins Tiger Lillies sem verða í Íslensku óperunni á föstudagskvöld kl. 21.00. Á 20 ára ferli hafa þeir gefið út 21 geisladisk og haldið fjöldann allan af tónleikum, en efnisskráin á föstudagskvöld mun spanna allan ferilinn. Áhorfendur verða í það minnsta ekki sviknir um neitt.
Lesa meira
Myndlistamaðurinn Kristján Guðmundsson hlýtur hin virtu Carnegie verðlaun fyrir árið 2010, eina milljón sænskra króna, jafnvirði rúmlega 17 milljóna íslenskra króna. Margrét Þórhildur Danadrottning veitir verðlaunin í Kaupmannahöfn í september. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur myndlistamaður hlýtur aðalverðlaun þessara einna stærstu myndlistaverðlauna í heimi. Verðlaunin fær hann fyrir einstæð hljóðdempandi málverk sín, eins og segir í tilkynningu.
Tvenndarsýning Kristjáns og Hrafnkels Sigurðssonar stendur nú yfir á Listahátíð í Reykjavík í Listasafni Íslands.
Lesa meira
Á fyrstu tónleikum Trio Nordica á Listahátíð, sem eru í Listasafni Íslands í kvöld, þriðjudagskvöld kl. 20.00, leggur það áherslu á að kynna nýja Norræna tónlist. Er nýtt verk eftir Þórð Magnússon liður í því. Verkið nefnist Scherzo (nýtt píanótríó). Einnig eru á efnisskrá hið vinsæla píanótríó nr. 1 í d-moll eftir Felix Mendelssohn, í tilefni 200 ára afmælis hans í ár og hið hárómantíska verk Toivo Kuula, Píanótríó op. 7.
Trio Nordica var stofnað árið 1993 af þeim Auði Hafsteinsdóttur fiðluleikara, Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara, sem eru í hópi fremstu hljóðfæraleikara landins, og Monu Kontra, kunnum píanóleikara frá Svíþjóð, og fagnar því 15 ára afmæli sínu um þessar mundir.
Í framhaldi af tónleikum á Listahátíð heldur Trio Nordica tónleika með sömu efnisskrá í Svíþjóð og Finnlandi, en meðlimir Trio Nordica eru nú búsettir í þremur löndum; á Íslandi, Svíþjóð og Finnlandi.
Lesa meira
Rauði sprotinn (The Red Baton) er heimildamynd eftir Bruno Monsaingeon um rússneska tónlist frá 1917 til 1990 og rússneska hljómsveitarstjórann Gennadij Rosdestvenskij sem verður á dagskrá Sjónvarpsins í kvöld, sunnudagskvöld kl. 20.55.
Á þessu 73 ára tímabili komu fram stórkostleg tónskáld og framúrskarandi hljóðfæraleikarar þótt aðstæður þeirra væru oft fáránlegar og landsmenn byggju við harðræði undir ógnarstjórn kommúnista.
Þessa sögu rekur Gennadij Rosdestvenskij sem auk þess að vera magnaður hljómsveitarstjóri er litríkur karakter og snjall sögumaður.
Gennadij Rosdestvenskij stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Háskólabíói á Listahátíð í Reykjavík fimmtudaginn 28. maí.
Um helgina verða tuttugu og fimm stofutónleikar á jafn mörgum heimilum í Reykjavík, í póstnúmerum 101 til 111.
Framúrskarandi tónlistarmenn/hópar úr sígildri tónlist; djassi, poppi, rokki, raftónlist og fleiri kimum tónlistar koma fram og leika tónlist í einstakri nálægð við áheyrendur. Enn má fá miða á einhverja af þeim Stofutónleikum Listahátíðar sem í boði eru.
Húslestrar heima hjá höfundum verða Listahátíð 30. og 31. maí.
.
Lesa meira
Vegna fjölda áskorana efnir Listahátíð í Reykjavík til aukatónleika með mexíkósk/kanadíska söngvaskáldinu Lhasa de Sela og hljómsveit en uppselt var á tónleika hennar 23. maí. Aukatónleikarnir verða nánar tiltekið í kvöld, sunnudaginn 24. maí kl. 20.00 í Nasa við Austurvöll. Aðeins örfáir miðar eru eftir á tónleikana.
Lhasa de Sela hefur gefið út tvo geisladiska; La Llorona, sem kom út 1998 og Living Road árið 2004. Báðir diskarnir fengu frábæra dóma og seldust í milljónum eintaka. Þriðji geisladiskur hennar sem heitir einfaldlega Lhasa, kom út á Íslandi í síðustu viku. Hann er nú "plata vikunnar" á Rás 2.
Lesa meira
Listahátíð í Reykjavík og listamannahúsið START ART standa fyrir glæsilegum gjörningi tileinkuðum þeim konum sem þvoðu þvott í gömlu þvottalaugunum í Laugardal.
Stór hluti gjörningsins er ganga sem hefst við útitaflið á Lækjartorgi kl.13.00. Gengið verður frá Lækjartorgi, upp Laugaveginn, inn í Laugardal og endað við gömlu Þvottalaugarnar.
Göngufólkið er beðið að hafa með sér ver, handklæði eða flík sem tengir það saman í göngustraumi sem liðast óslitinn upp allan Laugaveginn og á leiðarenda.
Við upphaf og lok göngunnar verða uppákomur og einnig á sjálfri göngunni. Í START ART verður sýning og sápugerð og fólki boðið til virkrar þátttöku.
Lesa meira
Í ár er 35. starfsár Kammersveitar Reykjavíkur og að því tilefni kynnir hún tónlist eftir konur úr austurvegi. Tónskáldin í Langholtskirkju í kvöld eru Sofia Gubaidulina frá Tatar lýðveldinu sem er eitt helsta tónskáld Rússa, Frangis Ali-Sade frá Azerbajan, Teh Tze Siew frá Malasíu og hin bráðunga Lera Auerbach frá Úralfjöllum sem er eitt helsta tónskáld sinnar kynslóðar.
Margir einleikarar koma fram á tónleikunum, m.a. Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari, sem jafnframt er listrænn stjórnandi Kammersveitarinnar, Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari og Hrólfur Vagnsson, sem leikur á rússnesku harmónikkuna bayan.
Stjórnandi er Vladimir Stoupel. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00.
Miðasala verður við innganginn.
Lesa meira
Í dag kl. 12.00 mun Hjálmar Sveinsson stýra áhugaverðu málþingi á vegum Listahátíðar á Kjarvalsstöðum undir yfirskriftinni Listin breytir heiminum, listin viðheldur óbreyttu ástandi. Fyrirlesarar eru Eiríkur Örn Norðdahl, María Kristjánsdóttir, Þórunn Erlu Valdimarsdóttir, Hjálmar H. Ragnarsson, Gestur Guðmundsson og Ragna Sigurðardóttir.
Í fyrirlestrunum bregður ýmsu fyrir, m.a.:
Efnahagskerfi ljóðsins
Skáldin eru verkfræðingar sálarinnar
Súpueldhús eða kyrralíf?
Sjúkur heimur öskrar á læknandi listir
Lesa meira
Hljóðritun frá einleikstónleikum Víkings Heiðars Ólafssonar á Listahátíð s.l. sunnudag verður flutt á Rás eitt kl. 16.07 á uppstigningardag. Uppselt var á tónleikana og hefur afar góður rómur verið gerður að þeim. Víkingi Heiðari var ákaft fagnað með standandi uppklappi í lok þessa fyrstu einleikstónleika hans í Háskólabíói, reyndar svo mjög að hann leyfði áheyrendum að njóta þriggja aukalaga.
Á efnisskrá voru Partíta nr. 5 eftir Johann Sebastian Bach, þrjár prelúdíur eftir Claude Debussy, tvær etíður eftir Györgi Ligeti, Sónata eftir Béla Bartok og þrjú næturljóð op. 15 eftir Frederic Chopin. Síðast en ekki síst voru fluttar einstakar umritanir Víkings Heiðars á sönglögum eftir Sigvalda Kaldalóns, Emil Thoroddsen og Pál Ísólfsson.
Sjá nánar um Listahátíð á Rás 1
Lesa meira
Frá og með sunnudeginum, 17. maí, stendur Listahátíð í Reykjavík að myndlistarsýningum í fjórum vitum, einum í hverjum landsfjórðungi.
Heiti sýningar Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur sem er í Kópaskersvita við Öxarfjörð er Assan yrkir, sýning Gjörningaklúbbsins í Garðskagavita ber heitið Vitaskuld, auðvitað, heiti sýningar Curvers Thoroddsen í Bjargtangavita er Sliceland - vestustu pizzur í Evrópu og Staðarskálinn er nafnið á sýningu Unnars Arnar í Dalatangavita.
Yfirskrift sýninganna Brennið þið, vitar! er sótt í ljóð Davíð Stefánssonar, sem ort var í tilefni Alþingishátíðarinnar 1930.
Leiftur frá vitasýningunum verður að finna í hinum ýmsu miðlum. Þar á meðal í Lesbók Morgunblaðsins, Ríkisútvarpinu og Sjónvarpinu. Sjá nánar hér.
Lesa meira
Eins komið hefur fram er uppselt á einleikstónleika Víkings Heiðars Ólafssonar sem verða í Háskólabíói í kvöld, sunnudagskvöldið 17. maí. Á efnisskrá hans eru meðal annars hans eigin umskrifanir á íslenskum ljúflingslögum eftir Pál Ísólfsson, Emil Thoroddsen og Sigvalda Kaldalóns. Einnig leikur hann verk eftir Bach, Debussy, Ligeti, Bartok og Chopin. Sjá nánar efnisskrá hér.
Í október á síðasta ári vann Víkingur við upptökur á verkum eftir Beethoven og Brahms fyrir fyrsta einleiksgeisladisk sinn. Diskurinn var tekinn upp í Gewandhaus tónleikahöllinni í Leipzig og kemur út í dag tilefni fyrstu einleikstónleika hans.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.00.
Lesa meira
Rjómablíða er nú í höfuðborginni og á hún sinn þátt í að gleðja gesti og gangandi sem taka þátt í Listahátíð í Reykjavík. Götulistamenn frá áströlsku borginni Melbourne héldu sýningu á rúmlega fjögurra metra háum sveigjanlegum stöngum á Austurvelli og þar var margmenni saman komið.
Norskar hjólhýsakonur, það er fimm stórir skúlptúrar á hjólum, fara um borgina og við tjörnina hefur verið uppákoma fyrir alla fjölskylduna.
Þéttsetið er á útikaffihúsum og mikil stemmning. Þá er heitt eins og á hásumardegi.
Sjá myndir og frekari umfjöllun á mbl.is á þessari slóð: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/05/16/stemmning_i_blidunni/
Lesa meira
Nú er dögun nýs lýðveldis! Þú gengur inn í nýjan heim við Hverfisgötuna. Flóttamannabúðir fyrir utan Þjóðmenningarhúsið eru táknmynd þess hvernig komið er fyrir sjálfstæði Íslands á tímum efnahagslegrar kreppu, fólk er svo gott sem fangar í eigin landi.
Margrét Vilhjálmsdóttir, leikkona og listrænn stjórnandi, fer fyrir hópi listamanna sem leiðir gesti Þjóðmenningarhússins um gjörning um landamæri og skrifræði og leiksýningu um stríðsmenningu. Hópurinn flytur þetta eldfima efni inn í Þjóðmenningarhúsið, tákn fyrir íslenskt lýðræði og sjálfstæði. Hið virðulega Þjóðmenningarhús verður vettvangur stríðsátaka, kvenfrelsisbaráttu, stríðs og friðar. Leikrit inni í leikritinu fjallar um konur sem hittast eftir langvarandi stríð, höfundur þess er Hrund Gunnsteinsdóttir.
Frumsýning er kvöld, laugardagskvöld kl. 20.00 í Þjóðmenningarhúsinu.
Aðrar sýningar eru á morgun, sunnudagskvöld kl. 20.00 og 20., 24. og 27. maí kl. 20.00 og 23. maí kl. 17.00.
Það verða ekki bara ástralskir götulistamenn og norskar hjólhýskonur sem setja munu svip sinn á Austurvöll kl. 14.00 og 16.00 í dag, laugardaginn 16. maí, heldur mun hver viðburðurinn reka annan í miðborg Reykjavíkur og víðar.
Náttúrugæslustöðin mun taka á sig mynd við Reykjavíkurtjörn kl. 11.00 - 14.00 og í Galleríi 100°kl. 15.00, Hrafnhildur Arnardóttir opnar sýningu undir heitinu Hegómaröskun í i8 kl. 16.00, spennandi sýning á munum hönnuðum úr ljósmyndum verður í Ljósmyndasafni Reykjavíkur kl. 15. 00 og Hulda Hákon opnar sýningu í Listasafninu á Akureyri. kl. 15.00. Í Listasafni Reykjanesbæjar opnar sýning Olgu Bergmann sem nefnist Í húsi sársaukans kl. 17.00 og sýning hollenska listamannsins Klaas Kloosterboer opnar í Suðsuðvestur í sama bæjarfélagi klukkustund áður eða kl. 16.00. Ókeypis aðgangur er á alla þessa viðburði.
Kynningarþáttinn um dagskrá Listahátíðar í Reykjavík, sem hefst næsta föstudag, má nú horfa á á vef Ríkisútvarpsins. Þátturinn var að dagskrá Sjónvarpsins kl. 20.55 á sunnudagskvöld. Þar var farið yfir alla þá sjötíu viðburði sem verða á dagskrá hátíðarinnar frá 15. - 31. maí.
Kynnir er Þóra Arnórsdóttir fréttamaður og um dagskrárgerð sér Jón Egill Bergþórsson. Hér má horfa á þáttinn í heild sinni.
Þátturinn verður endurtekinn kl. 23.15 næsta miðvikudagskvöld og svo aftur næstkomandi föstudag kl. 15.15
Robert De Niro eldri verður á meðal listamanna á sýningunni Frá Unuhúsi til Áttunda strætis sem verður opnuð við setningu Listahátíðar í Reykjavík í Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum næstkomandi föstudag.
Það vita ekki margir að De Niro eldri var virtur listmálari og til eru mörg vel metin verk eftir hann. Hann lagði stund á málaralistina hjá sama lærimeistara og Louisa Matthíasdóttir og Nína Tryggvadóttir en einnig verða sýnd verk eftir þær sem hafa ekki sést áður hér á landi.
Lesa meira
Kynningarþáttur um Listahátíð í Reykjavík 2009 verður á dagskrá Sjónvarpsins kl. 20.55 á sunnudagskvöld. Í þættinum verður farið yfir alla þá sjötíu viðburði sem verða á dagskrá hátíðarinnar frá 15. - 31. maí. Kynnir er Þóra Arnórsdóttir fréttamaður og um dagskrárgerð sér Jón Egill Bergþórsson. Sjá nánar á www.ruv.is
Lesa meira
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari hefur verið tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2009. Tilkynnt var um tilnefninguna í gær, þriðjudaginn, 5. maí. Víkingur Heiðar þykir hafa sýnt mikla listræna og faglega færni á undanförnum árum. Fyrstu einleikstónleikar hans í Háskólabíói verða á Listahátíð í Reykjavík 17. maí. Efnisskrá hans á Listahátíðartónleikunum verður einkar spennandi blanda íslenskra ljúflingslaga og verka eftir Chopin, Bartók og fleiri.
Lesa meiraFimm norskar hjólhýsakonur, sem setja munu sterkan svip á Listahátíð í Reykjavík, eru nú á leið til landins. Var þeim skipað út í Árósum þaðan sem þeim verður siglt sem leið liggur til Íslands. Von er á hjólhýsakonunum til landins undir lok næstu viku. Norsku hjólhýsakonurnar eru verk listakonunnar Marit Benthe Norheim sem vakið hafa mikla athygli á Norðurlöndunum og víðar. Þessir skemmtilega kvenlegu skúlptúrar munu meðal annars prýða Austurvöll laugardaginn 16. maí.
Lesa meira
Gagnrýnendur hafa kallað mexíkósk / kanadíska söngvaskáldið Lhasa de Sela engil í mannsmynd.
Tónleikar hennar 23. maí teljast til mikilla tíðinda, enda hennar fyrstu um árabil. Nýlega var farið yfir viðburðaríkan tónlistarferil hennar í þættinum Til allra átta á Rás 1. Hann má hlusta á í heild sinni hér á ruv.is. Miðaverð 3.500 kr.
píanósnillingi er margt til lista lagt því á sínum fyrstu einleikstónleikum á Listahátíð í Reykjavík frumflytur hann eigin sönglagaumskrifanir á ljúflingslögum eftir þjóðþekkt íslensk tónskáld eins og Sigvalda Kaldalóns, Pál Ísólfsson og Emil Thoroddsen. Einnig mun hann flytja verk eftir Bach, Debussy, Ligeti, Bartok og Chopin. Miðaverð 2.900 kr.
Lesa meira
25 stofutónleikar verða haldnir á jafn mörgum heimilum helgina 22. til 24. maí og 11 skáld og rithöfundar verða með húslestra 30. og 31. maí. Aðeins örfáir miðar eru í boði.
Lesa meira
Um miðjan maí hefst tveggja vikna þéttskipuð dagskrá með fjölbreyttum viðburðum á götum úti, í leikhúsum, sýningarsölum, vitum, heima í stofum og teygja einnig anga sína út á land.
Lesa meira
Katrín Ólína er hönnuður veggspjalds Listahátíðar í Reykjavík, 2009. Hún er virk á ýmsum sviðum hönnunar á erlendum vettvangi og hefur árum saman unnið að þróun persónulegs myndheims sem hún hefur nýtt á sérstæðan hátt við innanhússhönnun, vöruhönnun, myndlist, hreyfimyndagerð og tískuhönnun.
Lesa meiraPósturinn verður einn af samstarfsaðilum Listahátíðar í Reykjavík árið 2009. Héðinn Gunnarsson, framkvæmdastjóri hjá Póstinum og Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Listahátíðar undirrituðu á dögunum samning um víðtækan stuðning Póstsins við Listahátíð.
Lesa meira
Meðal fjölmargra viðburða á Listahátíð í Reykjavík í vor eru 25 stofutónleikar sem haldnir verða á jafn mörgum heimilum helgina 22.-24. maí og 11 húslestrar þar sem skáld og rithöfundar efna til húslestra á heimilum sínum helgina 30.-31. maí.
Framúrskarandi tónlistarmenn/hópar úr sígildri tónlist, djassi, poppi, rokki, raftónlist og fleiri kimum koma fram og leika tónlist í einstakri nálægð við áheyrendur. Meðal þeirra eru Dvorák-hópurinn, Bloodgroup, Melakvartettinn, Ólöf Arnalds, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Felix Bergsson, Áshildur Haraldsdóttir, Ásgerður Júníusdóttir, hljómsveitin Reykjavík!, Vicky, Bergþór Pálsson, Diddú, Hlíf Sigurjónsdóttir og Hjörleifur Valsson, Melchior,Tómas R. Einarsson, og svo mætti áfram telja.
Mikil og góð miðasala hefur verið á þá tvo viðburði sem Listahátíð hefur þegar kynnt til sögunnar, eða einsöngstónleika Deboruh Voigt sem verða í Háskólabíói 31. maí og tónleika Tiger Lillies sem verða í Íslensku óperunni 29. maí.
Deborah Voigt er í dag talin í hópi fremstu sópransöngkvenna heims. Á efnisskrá hennar eru m.a. verk eftir Amy Beach, Giuseppe Verdi, Richard Strauss og Leonard Bernstein.
Tiger Lillies er eitt lofaðasta tríó Bretland og það verður því einstök upplifun að sjá þá í Íslensku óperunni. Um það hefur m.a. verið sagt að þeir séu djöfullegir en samt dásamlegir.
Lesa meira
Breska tríóið Tiger Lillies, sem kemur fram á Listahátíð í Íslensku óperunni 29. maí, hefur aldrei brugðist því hlutverki sínu að koma áheyrendum og áhorfendum á óvart með sínum einstöku og allt að því afbrigðilegu tónlistartilþrifum. Húmorinn er alltaf tvíræður og íronían beitt. Þeim er best lýst sem djöfullegum en samt dásamlegum. Miðasala er nú hafin á vef Listahátíðar og á www.midi.is.
Tónlist, og ekki síður tilþrif, Tiger Lillies skáru sig strax úr. Þótt margir hafi reynt að feta í fótspor þeirra hefur engum tekist að komast með tærnar þar sem Tígrisliljurnar hafa hælana. Þeir fengu hin virtu Olivier verðlaun fyrir “cult” söngleikinn Shockheaded Peter og Grammy-tilnefningu fyrir plötu sína Gorey End. Á 20 árum hafa þeir gefið út 21 geisladisk, tekið þátt í fjölmörgum uppákomum, haldið tónleika um allan heim.
Lesa meira
10. mars voru liðin 40 ár frá því samtök um Listahátíð í Reykjavík voru stofnuð. Aðdragandann má rekja til þess að Vladimir Ashkenazy, sem þá hafði búsetu á Íslandi, gerði tillögu um alþjóðlega tónlistarhátíð í Reykjavík, og Ivar Eskeland, forstöðumaður Norræna hússins, vakti máls á að halda norræna menningarhátíð í Reykjavík. Í viðræðum sem fram fóru milli Bandalags íslenskra listamanna, menntamálaráðherra og borgaryfirvalda var ákveðið að freista þess að samræma þessar hugmyndir og halda hér á landi alþjóðlega listahátíð með íslenskum og erlendum listamönnum. Þann 10. mars 1969 voru samtökin Listahátíð í Reykjavík stofnuð.
Lesa meiraAlls verða 11 skáld og rithöfundar með húslestra á heimilum sínum á Listahátíð í Reykjavík 2009, og fara þeir fram 30. til 31. maí. Hér er um einstaka viðburði að ræða, en aðgangur er takmarkaður við stofustærð hvers og eins þannig að færri komast að en vilja. Húslestrarnir eru sögulegt tækifæri til að kynnast ólíkum höfundum og verkum þeirra í návígi. Ljóð, sögur, brot úr stærri verkum, barnaefni, smáprósi, útgefið og óbirt – allt í senn!
Ein fremsta sópransöngkona heims, Deborah Voigt heldur einsöngstónleika á Listahátíð í Reykjavík 31. maí n.k. Á efnisskrá hennar eru m.a. verk eftir Amy Beach, Giuseppe Verdi, Richard Strauss og Leonard Bernstein.
Miðasala er hafin hér á vefnum www.listahatid.is og á www.midi.is
Deborah Voigt er tvímælalaust í fremstu röð dramatískra sóprana í heiminum í dag. Nýlega var sagt um hana í stórblaðinu New York Times að hún væri á hátindi ferils síns og undraverður túlkandi. Hún er þekkt fyrir frábæra túlkun sína á verkum eftir R. Strauss og R. Wagner en hún hefur sungið aðalkvenhlutverkin í alls sex óperum Wagners: Tristan og Ísold, Valkyrjunum, Hollendingnum fljúgandi, Tannhäuser og Lohengrin og öll frægustu kvenhlutverk í óperum R.Strauss,: Ariadne á Naxos, Helenu frá Egyptalandi, Elektra, Rosenkavalier og Salome. Auk þess hefur hún sungið fjölmörg hlutverk ítölsku óperubókmenntanna, svo sem Toscu, Aídu, Lady Macbeth, Amelíu í Grímudansleiknum og Leonóru í Valdi örlaganna eftir Verdi.
Lesa meira
Listahátíð hefur nú stofnað klúbb fyrir áhugasama listunnendur.
Lesa meiraEyrarrósin 2009 kom í hlut Landnámssetur Íslands í Borgarnesi og veittu aðstandur þess, þau Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, viðkenningunni móttöku í dag við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Fjölmennt var við athöfnina en auk afhendingar viðurkenningarinnar, flutti Ólöf Arnalds tónlist við afar góðar undirtektir gesta.
Lesa meira
Grammy-verðlaunin fyrir besta kammermúsíkleikurinn. Sigurbjörn Bernharðsson, fiðluleikari er félagi í Pacifica en sá kvartett kom fram á tvennum tónleikum á Listahátíð í Reykjavík vorið 2005.
Einnig kom Sigurbjörn fram á tónleikum á Listahátíð í fyrrvor sem haldnir voru til heiðurs frænda hans, Þorkeli Sigurbjörnssyni. Verðlaunin voru veitt fyrir plötu með verkum eftir Elliott Carter.
Félagar Sigurbjörns í Pacifica eru Brandon Vamos sellóleikari, Simin Ganatra fiðluleikari og Masumi Per Rostad víóluleikari.
Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent á Bessastöðum þriðjudaginn 10. febrúar kl. 16.00 og er það í fimmta sinn sem viðurkenningin er veitt.
Þrjú verkefni hafa verið tilnefnd úr hópi umsækjenda en þau eru Eyrbyggja, sögumiðstöð Grundarfirði, Skaftfell, miðstöð myndlistar á Austurlandi, Landnámssetur Íslands, Borgarnesi.
Samstarfssamningur þess efnis að Iceland Express verði einn af aðalsamstarfsaðilum Listahátíðar í Reykjavík var undirritaður í morgun. Er þetta í fyrsta sinn sem Listahátíð og Iceland Express starfa saman. Listahátíð væntir góðs af samstarfinu enda góðar og hagkvæmar samgöngur til og frá landinu ein af undirstöðum alþjóðlegrar Listahátíðar á Íslandi.
Lesa meira
Eyrarrósin, viðurkenning sem veitt er árlega einu afburða menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar á landsbyggðinni, verður sem fyrr afhent í byrjun árs 2009. Af því tilefni er hér með auglýst eftir umsóknum um Eyrarrósina 2009.
Lesa meira
Einn af fjölmörgum spennandi viðburðum á Listahátíð í Reykjavík í vor verður sýning sem haldin verður í fjórum vitum, einum í hverjum landsfjórðungi. Sýningarstjórarnir Markús Þór Andrésson og Dorothée Kirch hafa fengið listamennina Ásdísi Sif Gunnarsdóttur, Unnar Örn, Curver Thoroddsen og Gjörningaklúbbinn til þess að sýna í Bjargtangavita, Kópaskersvita, Dalatangavita og Garðskagavita.
Samkvæmt sögunni var vitum ætlað það hlutverk að verja landið. Á Listahátíð verður þeim hins vegar falið að beina kröftum sínum inn á við. Hugmyndin er að í stað þess að vitarnir þjóni því hlutverki eingöngu að senda ljós út í hafsauga muni þeir í sumar beina ljósgeislum sínum inn í landið og til fólksins í landinu.
Listahátíð hefur fengið Siglingastofnun til liðs við sig í þetta viðamikla verkefni og það er jafnframt unnið í nánu samstarfi við heimamenn og vitaverði í hverjum vita. Sýningarnar í vitunum fjórum verða opnar gestum og gangandi í allt sumar.
Listahátíð í Reykjavík og hið öfluga flugfélag Iceland Express hafa ákveðið að efna til samstarfs og undirrita samning þess efnis á næstu dögum.
Lesa meira
Listahátíð í Reykjavík sendir landsmönnun öllum óskir um gleðilegt ár með þökkum fyrir ánægjulegar samverustundir á árinu sem er að líða.
Sjáumst á Listahátíð í vor!