Reykjavík Arts Festival
Um Listahátíð í Reykjavík
Um Listahátíð í Reykjavík

Um Listahátíð í Reykjavík

Listahátíð í Reykjavík er haldin í maí ár hvert.

Hún var fyrst haldin árið 1970 og annað hvert ár frá þeim tíma til ársins 2004, en árlega eftir það. Hlutverk Listahátíðar er að skipuleggja og standa að árlegum Listahátíðum í Reykjavík á sviði tónlistar, leik- og danslistar, bókmennta, myndlistar, hönnunar og fleiri listgreina. Hafa skal metnaðarfulla listsköpun að leiðarljósi og kappkostað að tefla fram framúrskarandi listafólki af hinu alþjóðlega sviði og því besta sem býr í listmenningu þjóðarinnar. Sérstaka áherslu ber að leggja á nýsköpun og aðra þá þætti íslenskrar menningar sem skapa henni sérstöðu í samfélagi þjóðanna.

Hátíðin er fjármögnuð af menntamálaráðuneytinu, Reykjavíkurborg, tekjum af miðasölu, styrktar- og samstarfsaðilum.

Yfirstjórn Listahátíðar er í höndum fulltrúaráðs, sem er skipað helstu lista- og menningarstofnunum landsins ásamt ýmsum samtökum listamanna. Menntamálaráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík gegna formennsku í fulltrúaráðinu til skiptis, tvö ár í senn.

Gagngerar breytingar voru gerðar á stjórnarfyrirkomulagi hátíðarinnar árið 2000 þegar nýjar samþykktir gengu í gildi og skipuð var þriggja manna stjórn í stað framkvæmdastjórnar og ráðinn listrænn stjórnandi.

Á fulltrúaráðsfundi Listahátíðar í Reykjavík 30. október 2008 fór fram afgreiðsla skipulagsskrár Listahátíðar í Reykjavík og félagssamþykkta fulltrúaráðsins í samræmi við ákvörðun fulltrúaráðsfundar haustið 2005. Samkvæmt þeim er nú Listahátíð í Reykjavík orðin sjálfseignarstofnun.

Listrænn stjórnandi er yfirmaður stofnunarinnar og mótar dagskrá hverrar hátíðar. Dagskrárnefnd er til ráðuneytis listrænum stjórnanda.

Verndari:
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands

Heiðursforseti:
Vladimir Ashkenazy

Formaður fulltrúaráðs:
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra

Varaformaður fulltrúaráðs:
Jón Gnarr, borgarstjórinn í Reykjavík

Stjórn Listahátíðar skipa:
Kjartan Örn Ólafsson, formaður, skipaður af menntamálaráðherra
Sigurjón Kjartansson, varaformaður, skipaður af borgarstjóra
Margrét Bóasdóttir, fulltrúi fulltrúaráðs í stjórn

Listrænn stjórnandi Listahátíðar er Hrefna Haraldsdóttir
Framkvæmdastjóri er Guðrún Norðfjörð

Vakin er athygli á því að verkefni sem til greina koma fyrir hátíðina 2012 þurfa að berast listrænum stjórnanda fyrir 1. september 2011.



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica