1.-16. júní 2024

R1918

Tíminn féll saman á Listahátíð í Reykjavík 2018 í fjölmennasta viðburði hátíðarinnar það árið. Reykvíkingar ársins 1918 birtust ljóslifandi víðsvegar um borgina og horfðu beint í augun á okkur, hundrað árum síðar. R1918 var stórt þátttökuverkefni sem hófst með örstuttum daglegum útvarpsþáttum á Rás1 frá áramótum. Verkefnið náði hámarki sunnudaginn 10. júní, 2018 með risastórum gjörningi sem fram fór í miðborg Reykjavíkur með aðkomu hátt í 200 almennra borgara. Hér má hlusta á útvarpsþættina.

Listrænt teymi borgargjörnings: Ágústa Skúladóttir, Þórunn María Jónsdóttir og almennir borgarar.

Gerð R1918 útvarpsinnslaga: Starfsfólk Landsbókasafns - háskólabókasafns, Bjarni Jónsson, Úlfur Eldjárn, Þorgerður E. Sigurðardóttir & RÚV.

Þakkir: Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið, Búningadeild RÚV, Íslenska óperan, Borgarsögusafn & Þjóðdansafélag Reykjavíkur.

R1918 var unnið í samstarfi við RÚV, Landsbókasafn - háskólabókasafn og fleiri aðila og var hluti af dagskrá aldarafmælis fullveldis Íslands.