Reykjavík Arts Festival

Miðju box

Listahátíð í Reykjavík er haldin í maí ár hvert

Hún var fyrst haldin árið 1970 og annað hvert ár frá þeim tíma til ársins 2004, en árlega eftir það. Hlutverk Listahátíðar er að skipuleggja og standa að árlegum Listahátíðum í Reykjavík á sviði tónlistar, leik- og danslistar, bókmennta, myndlistar, hönnunar og fleiri listgreina. Hafa skal metnaðarfulla listsköpun að leiðarljósi og kappkostað að tefla fram framúrskarandi listafólki af hinu alþjóðlega sviði og því besta sem býr í listmenningu þjóðarinnar. Sérstaka áherslu ber að leggja á nýsköpun og aðra þá þætti íslenskrar menningar sem skapa henni sérstöðu í samfélagi þjóðanna.

Lesa meira
 

MIÐASALA Á KAUFMANN HEFST 1. MARS kl. 12

Jonas-Kaufmann-200x200

 

Listahátíð í Reykjavík 2011 verður haldin frá 20. maí - 5 júní.

Meðal aðalviðburða hátíðarinnar verða tónleikar þýska stórtenórsins Jonasar Kaufmann í Hörpu með Sinfóníuhljómsveit Íslands þann 21. maí 2011.

Jonas Kaufmann er nú á hátindi ferils síns og er einn eftirsóttasti tenór veraldar. Það er því mikið gleðiefni að hann muni koma fram á Listahátíð í Reykjavík í vor. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Hörpu. Miðasala á tónleikana hefst 1. mars kl.12 á hádegi. Skráðu þig á póstlista Listahátíðar til að missa ekki af því þegar forsala hefst.

 Lesa meira

Lesa meira
 

FJÖRUTÍU ÁRA SAGA

Gimli Lækjargötu

Listahátíð í Reykjavík var haldin í fyrsta sinn sumarið 1970. Frá upphafi hefur hátíðin verið í fararbroddi í íslensku menningarlífi og verið frumkvöðull í því að kynna íslensku þjóðina fyrir listamönnum á heimsmælikvarða.

Listahátíð hefur einnig í samstarfi við helstu menningarstofnanir landsins stuðlað að framgangi íslensks listalífs og kynningu íslenskra listamanna á erlendri grund og tilvera Listahátíðar hefur jafnframt verið nýtt með virkum og áhrifaríkum hætti í því skyni að kynna land og þjóð.

Hér er hægt að skoða allar dagskrár Listahátíðar frá upphafi og rifja upp tíðaranda í menningu og listum í fjóra áratugi.

Lesa meira
 

FJÖRUTÍU ÁRA SAGA

2010-0307-MBL-Vidtal-vid-Hrefnu

Listahátíð í Reykjavík var haldin í fyrsta sinn sumarið 1970.  Frá upphafi hefur hátíðin verið í fararbroddi í íslensku menningarlífi og verið frumkvöðull í því að kynna íslensku þjóðina fyrir listamönnum á heimsmælikvarða.

Hér er hægt að skoða allar dagskrár Listahátíðar frá upphafi og rifja upp tíðaranda í menningu og listum í fjóra áratugi.

Lesbók Morgunblaðsins rifjaði nýlega upp heimsóknir nokkurra gesta Listahátíðar. Lesa umfjöllun Morgunblaðsins.
Einnig birtist í Sunnudagsmogganum þann 7. mars viðtal við stjórnanda Listahátíðar, Hrefnu Haraldsdóttur, sem sjá má hér.

Lesa meira
 

ERUM Í GIMLI

Gimli

Skrifstofur Listahátíðar í Reykjavík eru fluttar í Gimli við Lækjargötu 3.

Má segja að hátíðin sé komin aftur á æskustöðvarnar því hún hóf starfsemi sína árið 1969 í einu herbergi í Gimli.

Fyrsta Listahátíðin var haldin vorið 1970 og fagnar Listahátíð því 40 ára afmæli vorið 2010.


Lesa meira
 



Leita á vefnum



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica