Vinnustofutónleikar
Tólf tónleikar á tveimur dögum um alla borg
Í ár leiðir Listahátíð saman myndlistarmenn og tónlistarmenn á vinnustofutónleikum, þar sem myndlistarmenn opna vinnustofur sínar fyrir tónleikum tónlistarfólks. Hér er á ferð einstakt tækifæri til upplifunar jafnt fyrir myndlistar- og tónlistaráhugamenn. Alls er um tólf tónleika að ræða sem hefjast á klukkutíma fresti, laugardag og sunnudag.
