Reykjavík Arts Festival
Dagskrá 2010

Dagskrá listahátíðar 2009

VORTEX TEMPORUM

  • Njúton
  • Njuton

Íslenska óperan

Miðaverð: 2900 kr.

  • 04 jún. 20:00


 

Njúton og The Formalist Quartet flytja stórvirki nútímatónbókmenntanna

Í tilefni af lokadögum Listahátíðar býðst miðinn á tónleikana á 1.900 krónur í dag, föstudaginn 4. júní. Afslátturinn reiknast sjálfkrafa er gengið er frá miðakaupum á netinu. Einnig er miðasala við innganginn.

Kaupa miða

Íslenski tónlistarhópurinn Njúton og bandaríski strengjakvartettinn The Formalist Quartet leiða saman hesta sína og frumflytja á Íslandi eitt af stórvirkjum tónlistarsögu 20. aldar; Vortex Temporum eftir franska tónskáldið Gérard Grisey. Tónlist Grisey hefur lítið hljómað á Íslandi en hann er eitt af höfuðskáldum svokallaðrar spektraltónlistar. Á tónleikunum verður jafnframt frumflutt nýtt verk eftir Atla Ingólfsson, innblásið af einum af hans lærifeðrum, einmitt Gérard Grisey. Einnig verða tveir strengjakvartettar eftir Úlfar Inga Haraldsson og Nicholas Deyoe fluttir á tónleikunum.

Tónlistarhópurinn Njúton hefur það að markmiði að flytja og panta tónlist úr samtímanum sem hópurinn telur að eigi brýnt erindi við áheyrendur. Hópurinn hefur komið fram á fjölda tónleika á Íslandi og farið í tónleikaferðir til Norðurlandanna og Bandaríkjanna. Á þeim rúma áratug sem hópurinn hefur starfað hafa um fleiri tugir verka, einkum eftir íslenska höfunda, fæðst fyrir hans tilstilli en úrval þessara verka kom út á geisladisknum Roto con moto í lok árs 2007 á vegum Smekkleysu.
Diskurinn var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2008 í flokki sígildrar og samtímatónlistar.

Hljóðfæraleikarar á tónleikum Listahátíðar eru: Berglind María Tómasdóttir flauta, Brian Walsh klarinett, Mark Menzies fiðla/víóla/stjórnandi, Andrew McIntosh fiðla/víóla, Andrew Tholl fiðla, Ashley Walters selló og Tinna Þorsteinsdóttir píanó.
Strengjaleikararnir eru allir meðlimir í strengjakvartettnum The Formalist Quartet sem hefur notið mikillar velgengni vestanhafs og komið fram víða um Bandaríkin, meðal annars á tónlistarhátíðum, í tónlistarhúsi Los Angeles; Walt Disney Concert Hall og víðar.

Forspjall á Sólon kl 18.00 tónleikadag

Atli Ingólfsson tónskáld fjallar þar um spektral tónlist og svarar meðal annars spurningunni hvers vegna Vortex Temporum er eitt af meistaraverkum 20. aldarinnar. Veitingasala.


www.njuton.com

www.theformalistquartet.com


Efnisskrá

Atli Ingólfsson: Forbidden Mantra (2010)

frumflutningur

Nicholas Deyoe: Images from a sleepless night (2009)

Úlfar Ingi Haraldsson: Polar II „Arctica” (1996/2006-7)
I.               Delicato - “Ice”
II.              Giocoso - “Stars”
III.             Grazioso - “Solitude”
IV.            Fragile poco agitato - “Freezing”

hlé

Gérard Grisey: Vortex Temporum I, II, III (1994-1996)
frumflutningur á Íslandi


 


Um verkin og höfundana

Forbidden Mantra

Það ber við að hugmyndir sækja á mig eins og mantra sem vill ekki gleymast og kannski eru þær því  ágengari sem ómögulegra virðist að festa á þeim hendur.

Verkið var samið með  styrk frá tónskáldasjóði Ríkisútvarpsins á vormánuðum 2010.  (A.I.)

Atli Ingólfsson býr í  Reykjavík og starfar sem tónskáld en kennir meðfram við Listaháskóla Íslands og Tónlistarskóla Kópavogs.
 
http://www.atli-ingolfsson.com/


Images from a sleepless night
Þetta stutta verk skrifað ég og færði the Formalist Quartet sem óvæntan jólaglaðning. Það sem er óvenjulegt við téðan kvartett er að tveir af fjórum meðlimum leika bæði á fiðlu og víólu. Ég hafði ætlað mér að skrifa verk fyrir kvartettinn með tveimur víólum í stað tveggja fiðla með tíð og tíma, eða einhvern tímann á næstu árum. En þegar ég var andvaka eina nóttina fékk ég hugmynd að tveggja mínútna verki sem byggist á glitrandi yfirtónum með tilvísun í víóluprólóginn úr Les espaces acoustiques eftir Grisey (verk sem Andrew McIntosh leikur af mikilli snilld). Eftir þessa andvökunótt  ákvað ég að koma kvartettnum á óvart og hripaði niður verkið.  Það er fyrst í röð verka sem að öllum líkindum munu mynda bálk verka skrifuð fyrir Formalistana þar sem tvær víólur koma við sögu. (N.D.)

Nicholas Deyoe fæddist árið 1981 í Boulder í Colorado. Hann stundar doktorsnám í tónsmíðum við Kaliforníuháskóla í San Diego undir handleiðslu Roger Reynolds. Hann leggur jafnframt stund á hljómsveitarstjórnun, og er m.a. aðstoðarstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar La Jolla.

http://www.nicholasdeyoe.com/

***

Polar II „Arctica”
Verkið er byggt á eldri strengjakvartett er ég samdi í Bandaríkjunum 1996 og breytti síðan mikið 2006-7 og gerði úr nánast nýtt verk. Verkið er að nokkru leyti innblásið af ákveðnum anga modernismans í tónlist þar sem samspil hrynjanda og tónefnis er allt nákvæmlega skipulagt án þess þó að vera byggt á svokallaðri raðtækni eða tólftónaaðferð. Ég var að leita að fíngerðum áhrifum í áferð og samspili strengjaraddanna, og leitast við að halda tryggð við ákveðin hljómræn lögmál þrátt fyrir oft á tíðum mjög frjálsa pólífóníska áferð. Að öðru leyti er verkið hugleiðing um norðurhjara á tíma þegar ég hafði dvalið um nokkura ára skeið í veðurparadís í Kaliforníu. (Ú.I.H.)

Úlfar Ingi Haraldsson starfar sem tónskáld, kontrabassaleikari, tónlistarkennari og stjórnandi. Hann hefur samið hljómsveitar-, kammer-, kór- dans- og einleiksverk sem flutt hafa verið á Norðurlöndunum, Ítalíu og í Bandríkjunum og Mexíkó.
Úlfar Ingi lauk doktorsprófi í tónsmíðum og tónfræðum frá Kaliforníuháskóla í San Diego árið 2000. Meðal helstu kennara hans þar voru Brian Ferneyhough, Rand Steiger og Bertram Turetzky.

***

Vortex Temporum I, II, III
Það einkenndi spektraltónlistina á upphafsárunum að þekkjanlegar tónmyndir – hugmyndir teiknaðar með tónbilum og hryn - hurfu því sem næst úr tónlistinni.  Markmiðið var ekki að semja með nótum eða hljóðum, heldur að semja hljóð. Formið hneigðist í átt að einni samfelldri þróun.  Röskum tuttugu árum síðar, árið 1996, samdi Gérard Grisey Vortex Temporum.  Þar setti hann sér það markmið að takast á við tónmyndina en jafnframt hugmyndina um takt.  Þetta ber ekki að skilja sem spor af þeirri braut sem hann hafði fram að þessu fylgt.  Öllu heldur virðist verkið skoða tónmyndirnar frá nýju sjónarhorni, eins og þær væru hvert annað hljóðeðlisfræðilegt fyrirbæri.  Tónabugðuna í upphafi fyrsta kafla má rekja til Maurice Ravel en hún er jafnframt tákn hljóðbylgju í huga Griseys, og eins og hljóðbylgjan fyrr er það nú tónmyndin sem er undin og bjöguð eftir því sem verkinu vindur fram. Verkið er í þremur þáttum og er sá í miðið eins konar hægur kafli og hugleiðing um taktslag, en þættirnir eru leiknir í einni samfellu og tengdir með einföldum millispilum.  Hver þeirra er tileinkaður einum förunaut höfundarins um heim hljóðsins: Gérard Zinztag, Helmut Lachenmann og Salvatore Sciarrino.  Þótt hér stígi skáldskapur Griseys að nokkru inn á nýjar slóðir er meginviðfangsefnið hið sama og í fyrri verkunum: Tíminn, þykkt hans og hraði, væntingin og minnið.  Vortex Temporum tekur um fjörutíu mínútur í flutningi. (A.I.)

Gérard Grisey fæddist árið  1946 í Belfort í Alsace héraði.  Meðal áhrifavalda hans  í tónlist má telja Olivier Messiaen, György Ligeti, Karlheinz Stockhausen og Iannis Xenakis, en öllum þeim kynntist hann á námsárum sínum í París og Darmstadt.  Ásamt Tristan Murail er hann er yfirleitt talinn helsti upphafsmaður spektraltónmáls þótt seinna meir kærði hann sig ekki um merkimiða af því tagi.  Hann lést í París árið 1998. 


 


 

Senda grein




Leita á vefnum



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík


Útlit síðu:

langnav



Þetta vefsvæði byggir á Eplica