Á MÖRKUNUM?
Viðburðurinn
Ásgerður Júníusdóttir messósópran og Jónas Sen píanónleikari og útsetjari flytja sönglög sem mörgum eru kunn og kær eftir Björk Guðmundsdóttur,
Gunnar Reyni Sveinsson og Magnús Blöndal Jóhannsson í nýjum útsetningum og útfærslum. Þetta eru tónleikar þar sem stefnt er saman þremur ólíkum tónskáldum sem eiga það sameiginlegt að hafa samið tónlist sem er á mörkum klassískrar tónlistar og annarra tónlistarstefna og heyra má áhrif frá jazz, kvikmyndatónlist, dægurtónlist og popptónlist. Á tónleikunum mun Jónas leika á orgel, píanó, selestu, sembal og rafmagnshljómborð. Hann lék á þessi hljóðfæri og fleiri á yfir 70 tónleikum í heimsreisu Bjarkar á árunum 2007-2008 og hefur hann nú útsett yfir fjörutíu lög hennar fyrir rödd og ýmis hljómborðshljóðfæri.
Tónleikarnir verða einnig á Skriðuklaustri, sunnudaginn 30. maí kl. 16:00
Miðasala á þá tónleika er í síma 471 2990 og á klaustur@skriduklaustur.is.
Um samstarf Jónasar Sen og Bjarkar:
Jónas Sen var hljómborðsleikarinn á heimsreisu Bjarkar Guðmundsdóttur á árunum 2007 og 2008. Þar lék hann á píanó, kirkjuorgel, sembal, selestu og rafhljómborð. Á hverjum tónleikum, sem voru yfir sjötíu talsins, tóku þau Björk yfirleitt eitt lag saman, nokkurskonar dúett. Þar á meðal var lagið Cover Me eftir Björk í alveg nýrri útsetningu Jónasar. Fleiri útsetningar urðu til og þegar heimsreisunni var lokið bað Björk Jónas um að útsetja um fjörutíu lög hennar fyrir rödd og ýmis hljómborðshljóðfæri sem myndu koma út í tveimur bókum. Í annarri bókinni er áherslan á vinsælustu popplög Bjarkar, þar eru útsetningarnar fyrir píanó og/eða gítar, auk þess að innihalda sönglínur og texta. Bókin er ætluð alþýðusöngvurum og eru tilvalin í útileguna! Í hinni bókinni eru útsetningarnar meira krefjandi, lögin eru flóknari, dýpri og stundum tilraunakenndari. Bókin mun, rétt eins og hin, innihalda sönglínur og texta, en meðleikurinn er hugsaður fyrir orgel, selestu, sembal eða píanó.
Nótur með tónlist Bjarkar hafa hingað til verið af mjög skornum skammti, svo segja má að útgáfan marki ákveðin tímamót á ferli Bjarkar. Hún stígur hér fram sem tónskáld, sem hún er ekkert síður en söngkona. Hún samdi fyrsta lagið sitt aðeins ellefu ára gömul og flest lögin sem hún syngur eru eftir hana sjálfa.
Listamennirnir
Ásgerður Júníusdóttir
Ásgerður Júníusdóttir mezzósópran hefur komið fram sem söngkona og leikkona á tónleikum, leiksýningum og listahátíðum í Reykjavík, London, París, Berlín, Stokkhólmi og víðar um Evrópu. Hún hefur gefið út tvo hljómdiska, Minn Heim og Þinn sem inniheldur lög og ljóð eftir íslenskar konur og Í Rökkri, sönglög eftir Magnús Blöndal Jóhannsson. Báðir diskarnir voru tilnefndir til íslensku tónlistarverðlaunanna. Hún hefur einbeitt sér að 20. og 21. aldar tónlist og frumflutt verk eftir fjölda núlifandi íslenskra tónskálda. Má þar nefna Jórunni Viðar, Atla Heimi Sveinsson, Hauk Tómasson og Karólínu Eiríksdóttur og Ragnhildi Gísladóttur.
Jónas Sen
Jónas Sen er píanóleikari og gagnrýnandi. Hann er umsjónarmaður sjónvarpsþáttaraðarinnar Átta raddir, sem verður á dagskrá Sjónvarpsins í haust, en þar ræðir hann við og spilar með átta íslenskum söngvurum. Þar á meðal eru Ásgerður Júníusdóttir og Björk Guðmundsdóttir. Samstarf Jónasar og Bjarkar hófst fyrir nokkrum árum, en Jónas var hljómborðsleikarinn í hljómsveit hennar á ferðalagi hennar um heiminn. Ferðalagið tók sautján mánuði. Hann vinnur nú að útsetningum á lögum Bjarkar fyrir ýmis hljómborðshljóðfæri, og er ráðgert að útsetningarnar komi út erlendis í tveimur bókum á næsta ári. Nokkrar útsetninganna verða frumfluttar á tónleikunum með Ásgerði á Listahátíð.
Tónskáldin
Björk Guðmundsdóttir
Björk Guðmundsdóttir er fyrst og fremst þekkt sem söngkona hér á landi. Sú plata sem selst hefur mest með henni er Gling-gló, en hún inniheldur þekkt djasslög, ekkert þeirra eftir Björk sjálfa. Sennilega er vinsælasta Bjarkarlagið á Íslandi Bella símamær! Björk er þó miklu meira en söngkona. Hún samdi fyrsta lagið sitt aðeins ellefu ára gömul og flest lögin sem hún syngur eru eftir hana sjálfa. Ástæðan fyrir því afhverju Íslendingar þekkja almennt ekki þessi lög er e.t.v. sú að þau er erfitt að skilgreina. Þau tilheyra ekki einhverjum einum menningargeira, heldur liggja gjarnan á mörkum ólíkra stefna í tónlistarheiminum. Mörg laganna einkennast af sérkennilegum, heillandi hljóðheimi sem verður til þegar rafhljóðum er blandað við akústísk hljóðfæri, oft frá fjarlægum löndum. Sum lögin eru tilraunakennd og maður heyrir jafnvel áhrif frá Stockhausen, Messiaen og fleiri frumkvöðlum nútímatónlistar. Þannig tónlist grípur hlustandann ekki endilega strax frá byrjun.
Hrynjandin í tónlist Bjarkar er oft flóknari en í venjulegum popplögum og laglínurnar heyrast stundum bara í hljóðfærunum í kringum sönginn. Þá er eins og söngurinn verði eitt af hljóðfærunum, millirödd í hljóðfærasamspilinu. Hljóðfærin eru ekki bara undirspil, heldur er dýnamísk spenna á milli hljóðfæra og raddar. Í þeim útsetningum sem Jónas Sen hefur gert og verða frumfluttar á tónleikunum af þeim Ásgerði Júníusdóttur, er lögð áhersla á þessa spennu. Hljóðfærin undirstrika andrúmsloftið í textunum, þau eru leiktjöldin, umhverfið og litirnir, galdurinn sem magnar skáldskapinn og gerir hann áþreifanlegan.
Gunnar Reynir Sveinsson
Gunnar Reynir Sveinsson fæddist í Reykjavík árið 1933. Strax sem barn vakti hann á sér athygli sem dansari og steppari í danssýningarflokki frú Rigmor Hanson í Reykjavík og auk þess vann hann sér inn vasaaura með því að leika á munnhörpu, blístra og jóðla fyrir fólk.Tíu ára gamall byrjaði Gunnar að læra nótnalestur og harmonikkuspil og tólf ára hóf hann nám í trommuleik hjá Skafta Ólafssyni og síðar hjá Svavari Gests. Sextán ára gamall var Gunnar orðinn atvinnumaður í danshljómsveitum og sem trommuleikari töframanna í Tívolíinu sem þá var starfrækt í Reykjavík. Upp úr 1953 hóf Gunnar tónsmíðanám hjá dr. Victor Urbancic og þar kynntist hann tónlist Bachs sem átti eftir að hafa áhrif á hann síðar á lífsleiðinni. Hann nam tónsmíðar við Tónlistarskólann í Reykjavík árin 1955–1961 undir handleiðslu Jóns Þórarinssonar. Ásamt því lék hann allar hörpuraddir í Sinfóníuhljómsveit Íslands, en hann spilaði með hljómsveitinni í níu ár. Hann stundaði síðar framhaldsnám við Tónlistarskólann í Amsterdam og Ríkisháskólann í Utrecht í Hollandi m. a. í raftónlist. Gunnar var meðal þeirra fyrstu sem áttu verk á tónleikum Musica Nova. Gunnar hóf ungur að leika í danshljómsveitum og bjó að þeirri reynslu alla tíð. Hann var upphafsmaður kammerdjasstónlistar hér á landi þar sem mætast straumar úr djassi og klassískri tónlist. Gunnar var afburða víbrafónleikari og lék víða um lönd með mörgum þekktum jassistum, má þar m.a. nefna Ronnie Scott, Chet Baker, Lee Konitz, Stephan Grappelli, Sven Asmundssen og fleirum. Gunnar hélt sig gjarnan á mörkum viðtekina tónlistarstefna og lék sér með ólík blæbrigði þeirra. Það er því erfitt að flokka tónlist Gunnars, hann vindur sér án vandkvæða yfir víðan völl ólíkrar tónlistar. Mörkin eru oft óglögg milli klassíkur og djass, sönglags og dægurlags, alvöru og skemmtunar hjá Gunnari. Hann var afkastamikið tónskáld og var mestur hluti verka hans einsöngslög, kórverk og orgelverk. Hann samdi einnig kammerverk og einleiksverk auk tónlistar með djassívafi. Gunnar Reynir Sveinsson lést árið 2008.
Magnús Blöndal Jóhannsson
Magnús Blöndal Jóhannsson fæddist árið 1925 á Skálum á Langanesi. Sjö ára gamall var Magnús farin að semja lög á píanóið og 10 ára gamall hóf hann nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík og var þá yngsti nemandinn sem tekinn hafði verið inn í skólann. Kennarar hans þar voru m.a. Victor Urbancic og Karl Ó. Runólfsson. Árið 1946 hélt Magnús til New York til náms við Julliard School of Music. Þar var hann í átta ár og lagði stund á hljómsveitarstjórn, tónsmíðar og píanóleik. Að loknu námi sínu í Bandaríkjunum árið 1954 fluttist Magnús aftur til Íslands. Hann varð tónlistargagnrýnandi á dagblaðinu Vísi frá 1954-57, píanóleikari og aðstoðarkórstjóri við Þjóðleikhúsið 1956-61, og starfsmaður tónlistardeildar Ríkisútvarpsins frá árinu 1955-72, að auki starfaði hann sem tónskáld. Magnús samdi aðallega sönglög framan af og einnig einstaka hljóðfæraverk, en um 1950 fer hann að gera tilraunir með 20 aldar tónsmíðatækni. Eftir að Magnús kom heim til Íslands eftir nám sitt í New York samdi hann nær eingöngu tónlist í nýjum stíl. Magnús mun hafa verið fyrstur Íslendinga til að yrkja undir afströktum tólftónahætti Schönbergs, 4 Abstraktsjónir frá árinu 1950. Hann var einnig fyrstur hérlendis til að semja raftónlist með verki sínu Elektrónísk stúdía frá árinu 1959. Meðal þekktustu verka Magnúsar á sviði kvikmyndatónlistar er tónlist hans við kvikmynd Ósvaldar Knudsen Surtur fer sunnan og samnefnt lag hans úr myndinni Sveitin milli sanda. Magnús var einn af stofnendum Musica Nova árið 1960, en á tónleikum félagsins voru fyrstu skrefin stigin í 20. aldar tónlist á Íslandi. Eftir Magnús liggja hátt í hundrað verk, sönglög, kvikmyndatónlist, leikhústónlist, hljómsveitar- og kammertónlist. Hann var hugrakkt tónskáld sem leitaði nýrra leiða í tónsmíðum sínum, var óhræddur við að segja borgaralegu gildismati í tónlist stríð á hendur og kanna mörk hins viðtekna. Magnús lést árið 2005.
Árið 2006 gaf Ásgerður Júníusdóttir í samvinnu við Smekkleysu út hljómdiskinn Í Rökkri. Á honum syngur hún sönglög Magnúsar og með henni leika Árni Heimir Ingólfsson á píanó og Steingrímur Þórhallsson á orgel. Á disknum má einnig finna elektrónískar útgáfur af sex sönglögum Magnúsar sem unnin eru af nokkrum íslenskum raftónskáldum Magnúsi Blöndal Jóhannssyni og brautryðjendastarfi hans til heiðurs.
Efnisskrá
Björk Guðmundsdóttir: New World
Gunnar Reynir Sveinsson: Bráðum kemur betri tíð
Magnús Blöndal Jóhannsson: In the Summer When the Sun is High
Magnús Blöndal Jóhannsson: Na no mani
Björk Guðmundsdóttir: Venus as a Boy
Magnús Blöndal Jóhannsson: Krummavísur
Björk Guðmundsdóttir: Pleasure is All Mine
Gunnar Reynir Sveinsson: Elín Helena
Björk Guðmundsdóttir: All is Full of Love
Magnús Blöndal Jóhannsson: Sveitin milli sanda
Hlé
Björk Guðmundsdóttir: Come to Me
Magnús Blöndal Jóhannsson: Little Raindrops
Björk Guðmundsdóttir: Isobel
Gunnar Reynir Sveinsson: Nóttin er til að gráta í
Björk Guðmundsdóttir: Army of Me
Björk Guðmundsdóttir: Vertebrae by Vertebrae
Gunnar Reynir Sveinsson: Maður hefur nú
Björk Guðmundsdóttir: Oceania
Björk Guðmundsdóttir: Bachelorette

