Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
Allar ljósmyndasýningar
Vaxmyndasafn

FYRIRMYNDIR / Ólöf Nordal

 

Myndlistarkonan Ólöf Nordal sýnir röð nýrra ljósmynda sem innblásin er af gamalli sögn um mann sem er á ferð upp til fjalla. Hann gengur fram á lík af ungum manni sem jökullinn hefur skilað aftur eftir langa vist í ísnum. Á meðan maðurinn virðir fyrir sér fullkomlega varðveittan líkamann, rennur upp fyrir honum að þetta muni vera hans eigin faðir sem hvarf á fjöllum þegar hann sjálfur var enn í móðurkviði. Þarna mætast þeir í fyrsta sinn feðgarnir; sonurinn fast að sjötugu, faðirinn liðlega tvítugur.

 

Listasafn ASÍ, Ásmundarsalur

15. maí - 6. júní

Opið 13 - 17 alla daga nema mánudaga

www.listasafnasi.is



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica