Beint í leiðarkerfi vefsins.
Höfundar opna dyr sínar upp á gátt og halda húslestra á heimilim sínum.Hver viðburður er einstakur og aðeins fá sæti í boði. Í húslestrunumægir öllu saman; ljóðum, sögubrotum, barnabókmenntum, útgefnu efni og nýskrifuðu.
Við sögu koma víðförull kaffibolli og spæld egg, skyggnst verður inn í nokkra af allra skemmtilegustu kimum helvítis, sagt frá annarlegri bernsku, leiguverði á undirmeðvitundum og birtu sem sigtast gegnum sálarmyrkrið.
Lesa meira
Lesin verða gömul ljóð og ný, og nokkrar stuttar sögur fá að fylgja með. Húslesturinn er tileinkaður árstíðinni, þegar vorið er að breytast í sumar, tíminn hættir að vera til, því morgunbirtan er óljós og líkist jafnmikið birtunni á öðrum stigum sólarhringsins.
Lesa meira
Andri Snær býður heim í stofu í Karfavogi þar sem hann ætlar að lesa úr áður óbirtum verkum, öðrum sem aldrei verða birt og einhverju sem er orðið máð af ofbirtingu. Sagt verður frá hugmyndum sem aldrei komust í orð og orðum sem vantaði stærri hugmynd.
Lesa meira
Það getur ýmislegt gerst í stofunni þar sem sögupersónur hafa orðið til og gera sig stundum heimakomnar. Það er óvíst hverjar þeirra mæta til leiks að þessu sinni.
Lesa meira
Af alls konar lygum og stuttum reisum með léttgeggjuðu fólki, afbrýðisömum kellingum, hefnigjörnum stelpum, ljúfum draumförum, eldrauðum kisum, skömmustutilfinningum og ímynduðum galdramálum.
Lesa meira
Í kaffisamsætið mæta þeir sem eru og þeir sem voru, lifendur og dauðir, þeir eru sögurnar sem rata á blað í þessu húsi þetta árið. Bakkelsið með kaffinu Íslandssögur og Reykjavíkursögur.
Lesa meiraBoðið til baðstofu
B: Beitarhús, Brúðuleikhús, Bróðir, vatns-Ból
A: Amma, stór-Afmæli, Andafundur, Apaspil
Ð: Eðlun, Miðlun, Trauðla, Blaðra, Baðstaður
S: Salón, smá-Svið, vind-Sæng, ein-Söngur
T: Torfbær, Taugar, Tiltekt, Tunga, Tíðir
O: Orðsifjar, Ofnæmi, Ofhleðsla, Ornun
F: Feldur, Föðurtún, Fóstra, Fallhlíf, Fífill
A: Afhausun, Angist, Angan, Annarlega, Auðn
Þrítugir krókófílar spígspora um veggi og gólf. Dularfullar eyjar á floti, á flugi og í kafi. Krakkar og gamlar kellingar flengjast um geiminn með torkennilegum verum. Það er allt í plati!
Lesa meira