Dagskrá listahátíðar 2009
BRENNIÐ ÞIÐ, VITAR!
Myndlist í fjórum vitum, einum í hverjum landshluta á Listahátíð
Um viðburðinn
Opnanir í vitum 17. maí kl. 15.00
Stendur til 3. ágúst 2009
Opnunartímar á Listahátíð: 17. – 31. maí, daglega (nema mánudaga), kl. 14.00-18.00
Opnunartímar í sumar: 1. júní – 2. ágúst, fimmtudaga – sunnudaga, kl. 14.00-18.00
Listahátíð í Reykjavík 2009 stendur í sumar að myndlistarsýningu í fjórum vitum hringinn í kringum landið, einum í hverjum landsfjórðungi. Listamönnum hefur verið boðið að setja upp verk sín í vitunum, sem verða opnir ferðalöngum fram yfir verslunarmannahelgi. Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru af sömu kynslóð og eiga það sammerkt, þrátt fyrir að vera mjög ólík innbyrðis, að kallast markvisst á við sitt nánasta umhverfi, samfélagið og áhorfendur og fara óhefðbundnar leiðir í að miðla sinni list. Heiti sýningarinnar er sótt í ljóð Davíðs Stefánssonar, ort í tilefni Alþingishátíðar árið 1930, þar sem vitum er lýst sem leiðarljósum sjófarenda. Nú verður dæminu snúið við, enda síður þörf á að senda ljósmerki á haf út í bjartri sumarnóttinni. Vitunum er ætlað að beina annars konar leiftri inn til lands og „lýsa hverjum landa“ eftir harðan vetur upplausnar og óvissu. Fólk er hvatt til að ferðast á milli vita í sumar, taka þátt í sérstökum menningarviðburði, heimsækja þessi forvitnilegu mannvirki og njóta einstakrar náttúrufegurðar. Aukinheldur teygir sýningin anga sína í hina ýmsu miðla og munu berast leiftur frá hverjum vita hér og hvar í allt sumar, þar sem listamennirnir verða í sérstöku samstarfi við útvarp, sjónvarp, dagblöð og vefmiðla.
Ásdís Sif Gunnarsdóttir sýnir í Kópaskersvita við Öxarfjörð
Curver Thoroddsen sýnir í Bjargtangavita á Vestfjörðum
Gjörningaklúbburinn sýnir í Garðskagavita á Suðurnesjum
Unnar Örn sýnir í Dalatangavita á Austfjörðum
ASSAN YRKIR

Ásdís fæst við myndbanda- og gjörningalist þar sem hún bregður sér í ólík hlutverk dulspárra vera. Með hjálp nýjustu tækni endurvekur hún fornar goðsagnir og ræður áhorfendum heilt, sem dæmi hefur hún nýtt sér veraldarvefinn til þess að miðla boðskap sínum persónulega til fólks. Hún sýnir í hinum ferstrenda og glæsilega vita á sléttunni við Kópasker í Öxarfirði. Ásdís Sif er fædd 1976 og nam myndlist í New York og Los Angeles. Frekari upplýsingar um Ásdísi má finna á heimasíðu hennar: www.asdissifgunnarsdottir.com
SLICELAND - Vestustu pizzur Evrópu

Curver hefur með raunveruleikagjörningum sínum og hjálp fjölmiðla endurspeglað eigin hversdagsheim. Dæmi um það eru eldri verk þar sem hann tók íbúðina sína í gegn, borðaði hamborgara upp á hvern dag og fór í megrun. Veruleikinn eins og hann blasir við flestum okkar fær nýja merkingu þegar hann er yfirfærður á vettvang myndlistar og fjölmiðla. Þá hefur Curver unnið markvisst með eigin ímynd og til marks um það er sú ákvörðun hans að afnema á fullorðinsárum skírnarnafn sitt og taka þess í stað upp heiti alþjóðlegs plastfyrirtækis, „Curver”. Hann sýnir á vestasta odda landsins, og þar með Evrópu, á barmi klettanna við Bjargtanga í námunda við Látrabjarg. Curver er fæddur 1976, lærði myndlist í Listaháskólanum og lagði stund á framhaldsnám í New York. Hann hefur verið ötull á vettvangi tónlistar, ekki síst undanfarin ár með hljómsveitinni Ghostigital. Frekari upplýsingar um Curver má finna á: www.ghostigital.com
VITASKULD, AUÐVITAÐ!

Gjörningaklúbburinn hefur staðið að fjölbreyttum gjörningum og sýningum sem bera ævintýralegan og táknrænan blæ. Örlæti og gestrisni eru hugtök sem klúbburinn hefur tileinkað sér og tryggja að áhorfendur hafi úr nógu að moða. Skemmst er að minnast umfangsmikilla gjörninga sem klúbburinn vann í samstarfi við Slökkvilið Reykjavíkur fyrir nokkrum árum og yfirlitssýningar í Listasafni Reykjavíkur árið 2007, en af því tilefni kom út vegleg bók um verk klúbbsins. Nú sýna þær í hinum reisulega vita á Garðskaga, við hlið minjasafnsins og kaffihússins sem þar er að finna. Gjörningaklúbbinn skipa þrír myndlistarmenn, Eirún Sigurðardóttir (f. 1971), Jóní Jónsdóttir (f. 1972) og Sigrún Hrólfsdóttir (f. 1973). Þær hafa stundað listnám hér á landi, í Berlín, Kaupmannahöfn og New York. Nánari upplýsingar um Gjörningaklúbbinn er að finna á heimasíðu þeirra: www.ilc.is
STAÐARSKÁLINN
Unnar Örn sýnir í Dalatangavita á Austfjörðum
Unnar Örn skoðar þær hefðir og venjur sem mótast hafa í skrásetningu fólks á umhverfi sínu. Hann þræðir stofnanir og söfn og notar innviði þeirra í verk sem draga dám af uppröðun og flokkun raunveruleikans. Þegar hann setti upp sýninguna „Coup d’;;;;Etat” í Suðsuðvestur árið 2007 vann hann í samstarfi við minjasafn Reykjanesbæjar og skeytti saman á eftirminnilegan máta staðbundinni menningararfleifð og táknmyndum nýfrjálshyggjunnar. Sýning Unnars verður í Dalatangavita, sem er á fáförnum en ægifögrum slóðum út af Mjóafirði á Austfjörðum. Unnar Örn er fæddur árið 1974 og nam myndlist í Reykjavík og Malmö. Frekari upplýsingar um Unnar Örn má finna á heimasíðu hans: www.unnarorn.net.
Listahátíð í Reykjavík vinnur sýninguna í samstarfi með Siglingastofnun Íslands, vitavörðum í hverjum vita og menningarfulltrúum þeirra sveitafélaga sem um ræðir.
Með sýningarstjórn fara Markús Þór Andrésson og Dorothée Kirch.
Kópaskersviti
ASSAN YRKIR
Ásdís Sif Gunnarsdóttir sýnir í Kópaskersvita við Öxarfjörð
Ásdís fæst við myndbanda- og gjörningalist þar sem hún bregður sér í ólík hlutverk dulspárra vera. Með hjálp nýjustu tækni endurvekur hún fornar goðsagnir og ræður áhorfendum heilt, sem dæmi hefur hún nýtt sér veraldarvefinn til þess að miðla boðskap sínum persónulega til fólks. Hún sýnir í hinum ferstrenda og glæsilega vita á sléttunni við Kópasker í Öxarfirði. Ásdís Sif er fædd 1976 og nam myndlist í New York og Los Angeles. Frekari upplýsingar um Ásdísi má finna á heimasíðu hennar: www.asdissifgunnarsdottir.com
Bjargtangaviti
SLICELAND - Vestustu pizzur Evrópu
Curver Thoroddsen sýnir í Bjargtangavita á Vestfjörðum
Curver hefur með raunveruleikagjörningum sínum og hjálp fjölmiðla endurspeglað eigin hversdagsheim. Dæmi um það eru eldri verk þar sem hann tók íbúðina sína í gegn, borðaði hamborgara upp á hvern dag og fór í megrun. Veruleikinn eins og hann blasir við flestum okkar fær nýja merkingu þegar hann er yfirfærður á vettvang myndlistar og fjölmiðla. Þá hefur Curver unnið markvisst með eigin ímynd og til marks um það er sú ákvörðun hans að afnema á fullorðinsárum skírnarnafn sitt og taka þess í stað upp heiti alþjóðlegs plastfyrirtækis, „Curver”. Hann sýnir á vestasta odda landsins, og þar með Evrópu, á barmi klettanna við Bjargtanga í námunda við Látrabjarg. Curver er fæddur 1976, lærði myndlist í Listaháskólanum og lagði stund á framhaldsnám í New York. Hann hefur verið ötull á vettvangi tónlistar, ekki síst undanfarin ár með hljómsveitinni Ghostigital. Frekari upplýsingar um Curver má finna á: www.ghostigital.com
Garðskagaviti
VITASKULD, AUÐVITAÐ!
Gjörningaklúbburinn sýnir í Garðskagavita á Suðurnesjum
Gjörningaklúbburinn hefur staðið að fjölbreyttum gjörningum og sýningum sem bera ævintýralegan og táknrænan blæ. Örlæti og gestrisni eru hugtök sem klúbburinn hefur tileinkað sér og tryggja að áhorfendur hafi úr nógu að moða. Skemmst er að minnast umfangsmikilla gjörninga sem klúbburinn vann í samstarfi við Slökkvilið Reykjavíkur fyrir nokkrum árum og yfirlitssýningar í Listasafni Reykjavíkur árið 2007, en af því tilefni kom út vegleg bók um verk klúbbsins. Nú sýna þær í hinum reisulega vita á Garðskaga, við hlið minjasafnsins og kaffihússins sem þar er að finna. Gjörningaklúbbinn skipa þrír myndlistarmenn, Eirún Sigurðardóttir (f. 1971), Jóní Jónsdóttir (f. 1972) og Sigrún Hrólfsdóttir (f. 1973). Þær hafa stundað listnám hér á landi, í Berlín, Kaupmannahöfn og New York. Nánari upplýsingar um Gjörningaklúbbinn er að finna á heimasíðu þeirra: www.ilc.is
Dalatangaviti
Unnar Örn sýnir í Dalatangavita á Austfjörðum
Unnar Örn skoðar þær hefðir og venjur sem mótast hafa í skrásetningu fólks á umhverfi sínu. Hann þræðir stofnanir og söfn og notar innviði þeirra í verk sem draga dám af uppröðun og flokkun raunveruleikans. Þegar hann setti upp sýninguna „Coup d'Etat” í Suðsuðvestur árið 2007 vann hann í samstarfi við minjasafn Reykjanesbæjar og skeytti saman á eftirminnilegan máta staðbundinni menningararfleifð og táknmyndum nýfrjálshyggjunnar. Sýning Unnars verður í Dalatangavita, sem er á fáförnum en ægifögrum slóðum út af Mjóafirði á Austfjörðum. Unnar Örn er fæddur árið 1974 og nam myndlist í Reykjavík og Malmö. Frekari upplýsingar um Unnar Örn má finna á heimasíðu hans: www.unnarorn.net.