Dagskrá listahátíðar 2009
FORBOÐNIR ÁVEXTIR
Götulistamenn frá Ástralíu á Austurvelli 16. maí kl. 14.00 og 16.00
Strange Fruit (Forboðnir ávextir) eru litríkir og hrífandi götulistamenn frá Melbourne í Ástralíu sem mun setja svip sinn á borgina á opnunarhelgi Listahátíðar í Reykjavík, 15. og 16. maí, bæði við setningu hátíðarinnar og einnig daginn eftir í miðborg Reykjavíkur.
Forboðnir ávextir leika listir sínar á rúmlega fjögurra metra háum sveigjanlegum stöngum sem sveiflast fram og aftur með miklum tilþrifum. Sérstaða hópsins liggur í einstökum hreyfingum og mikilli nálægð við áhorfendur, en hugmynd sýningarinnar á rætur í náttúrunni, einkum því hvernig strá sveigjast í vindi.
Hópurinn er skipaður snjöllum listamönnum sem segja skemmtilegar sögur og íklæðast skrautlegum búningum, en tjáning þeirra byggir í senn á leikhúsi, dansi og sirkusatriðum.
Þessir áströlsku götulistamenn hafa ferðast um heiminn þveran og endilangan og náð með nánast dáleiðandi hætti að heilla meira en milljón áhorfendur á öllum aldri í nær öllum heimsálfum.
Sagan sem þeir flytja á Íslandi heitirAkurinn og segir af helgisiðum tengdum tilhugalífinu; brostnum hjörtum og mögnuðum sveiflum. Inntak sögunnar er ást, frelsi og einmanaleiki sem ávallt nær að heilla áhorfendur með fegurð og gleði.
Strange Fruit hefur…
…komið fram í yfir 40 löndum…
…á meira en 300 alþjóðlegum hátíðum og viðburðum…
…sýnt fyrir meira en eina milljón áhorfendur…
…og hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna og viðurkenninga.
Sjá nánar á www.strangefruit.net.au
Sjá myndskeið með Strange Fruit:
www.strangefruit.net.au/ourwork/about
