Dagskrá listahátíðar 2009
HEL - ný íslensk ópera
Um viðburðinn
Sýningar 23. og 24. maí 20:00
Miðasala hjá Íslensku óperunni á www.opera.is eða í síma 511 4200.
Sagan HEL
Ný íslensk ópera byggð á samnefndri sögu Sigurðar Nordal Sagan Hel er samin upp úr hugleiðingum Sigurðar Nordals um Einlyndi og Marglyndi. Sagan segir af manni sem heitir Álfur og er frá Vindhæli. Álfur er persónugervingur hinnar mannlegu viðleitni til að finna lífinu tilgang. Af ótta við að glata sjálfum sér í alls kyns fjötra, hvort sem þeir eru úr járni eða rósum, yfirgefur hann ástkonu sína og heldur í ferðalag að leita gæfunnar.
Álfur: Ég leita gæfunnar, og finn hana þegar ég missi hennar, því sjálf leitin er gæfan.
Það er sviðslistahópurinn Hr. Níels sem setur upp óperuna.
Aðstandendur:
Tónlist: Sigurður Sævarsson
Leikstjóri: Ingólfur Níels Árnason
Söngvarar: Ágúst Ólafsson, Jóhann Smári Sævarsson, Hulda Björk Garðarsdóttir og kór
Hljóðfæraleikur: Caput-hópurinn
Íslenska óperan
Sýningin er tæpir 2 tímar með hléi.
Um listamennina
Sviðslistarhópurinn Hr. Níels
Hópinn skipa leikstjóri, leikari og leikskáld sem lögðu af stað með þá hugmynd að gera óperu eftir sögu Sigurðar Nordal, Hel, enda textinn einstaklega ljóðrænn og fallegur. Var stefnan strax tekin á að gera óperu sem væri nær landamærum leikhússins, það er óperu þar sem texta og textaflutningi væri gefið meira vægi en menn eiga að venjast í óperuflutningi. Var því ráðist í að gera leikgerð af sögunni og var eingöngu stuðst við upprunalegan texta Sigurðar. Tónskáldið Sigurður Sævarsson hreifst af hugmyndum hópsins og í framhaldi af því hófst samstarf um gerð óperunnar Hel, þar sem tónlistin var látin fæðast út frá orðunum.
Um listamennina:
Sigurður Sævarsson
Sigurður lauk meistaraprófi í tónsmíðum og söng frá Boston University vorið 1997. Helstu viðfangsefni hans síðustu árin hafa verið óperur og kórverk. Nýjasta verk Sigurðar heitir Hallgrímspassía. Verkið er samið fyrir kór, hljómsveit og einsöngvara. Textinn er unninn úr Passíusálmum Hallgríms Péturssonar. Verkið var frumflutt á Páskum 2007, af Schola cantorum og Caput, undir stjórn Harðar Áskelssonar.sigurdursaevarsson.com
CAPUT-hópurinn
CAPUT-hópurinn var stofnaður 1987 af ungum íslenskum tónlistarmönnum í þeim tilgangi að flytja nýja tónlist. CAPUT hefur frumflutt fjölda íslenskra og evrópskra tónverka og haldið tónleika í Norður-Ameríku og í 15 Evrópu löndum. CAPUT hefur komið fram á fjölmörgum tónlistarhátíðum í Evrópu, Ameríku og á Íslandi og hefur gefið út níu hljómdiska í Danmörku, Svíþjóð, Ítalíu, Bandaríkjunum og á Íslandi. Auk þess hafa hljóðritanir hópsins komið út á sjö safndiskum. CAPUT er leiðandi afl í flutningi nýrrar tónlistar á Íslandi og er á meðal fremstu tónlistarhópa í Evrópu sem fást við nýja tónlist. Hópurinn hefur hvarvetna hlotið lof fyrir kraftmikla túlkun og tæknilega yfirburði.
Ágúst Ólafsson
Ágúst Ólafsson stundaði nám við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar hjá Eiði Á. Gunnarssyni og síðan við Sibelíusar-akademíuna hjá Jorma Hynninen og Sauli Tiilikainen. Hann hefur sótt fjölda námskeiða, m.a. hjá Rudolf Jansen, Elly Ameling, Udo Reinemann, Wolfgang Holzmair, Hartmut Höll og Mitsuko Shirai. Ágúst sótti tvö meistaranámskeið hjá Elísabetu Schwarzkopf og sótti um tíma reglulega einkatíma hjá henni. Helstu hlutverk hans á óperusviðinu eru Don Giovanni, Posa greifi í Don Carlo og Le Disqorde í Les arts florissants í óperuuppfærslum Síbelíusar-akademíunnar, og með Óperustúdíói Austurlands hlutverk greifans í Brúðkaupi Fígarós og Don Giovanni. Ágúst hefur sungið á ljóðasöngstónleikum víða í Finnlandi og í Þýskalandi, m.a. í Berlín á sérstökum tónleikum í tilefni að 100 ára ártíð Hugo Wolfs, sem Dietrich Fischer-Dieskau skipulagði og tók sjálfur þátt í. Haustið 2004 söng hann titilhlutverkið í óperutryllinum Sweeney Todd og s.l. vetur hlutverk Skuggans í Flagara í framsókn (The Rake's Progress) í uppfærslum Íslensku óperunnar. Ágúst er nú fastráðinn við Íslensku óperuna.
Hulda Björk Garðarsdóttir
Hulda Björk Garðarsdóttir hóf söngnám sitt hjá Þuríði Baldursdóttur við Tónlistarskólann á Akureyri. Hún lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 1996 þar sem kennari hennar var Þuríður Pálsdóttir. Þaðan fór hún til náms við Hochschule der Künste í Berlin undir leiðsögn Frau Anke Eggers. Hún hlaut styrk frá The Associated Board of Music til náms við The Royal Academy of Music og lauk þaðan einsöngvaraprófi DipRam árið 1998. Þar var kennari hennar Elizabeth Ritchie. Hún hefur tekið þátt í masterclass m.a. hjá söngvurunum Kiri Te Kanawa, Barböru Bonney og Thomas Van Allen.
Hulda Björk debúteraði sem Súsanna í óperunni Brúðkaupi Fígarós hjá Garsington Opera árið 2000. Þá söng hún titilhlutverkið í óperunni Jenufa eftir Janacek hjá Norsku óperunni í Osló, og var síðan í hópi fyrstu fastráðinna söngvara hjá Íslensku óperunni árið 2003. Þar voru hlutverk hennar meðal annars Súsanna í Brúðkaupi Fígarós, Micaela í Carmen, Joanna í Sweeney Todd, Barnfóstran í Tökin hert (The Turn of the Screw) eftir Britten, Anne Trulove í Flagara í framsókn (The Rake's Progress) eftir Stravinsky og Violetta Valery í La traviata eftir Verdi.
Önnur hlutverk sem hún hefur sungið eru Fiordiligi í Cosi fan tutte, Euridice í Orfeo ed Euridice, Madama Butterfly úr samnefndri óperu og Danae úr Die Liebe der Danae eftir Richard Strauss.
Hulda Björk hefur komið fram á fjölda tónleika úti og hér heima. Hún hefur komið fram á ýmsum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og kammersveitinni Ísafold.
Jóhann Smári Sævarsson
Jóhann Smári Sævarsson hóf söngnám við Tónlistarskólann í Keflavík hjá Àrna Sighvatssyni og við Nýja tónlistarskólann hjá Sigurði Demetz. Hann stundaði framhaldsnám við sameiginlega óperudeild Royal College of Music og Royal Academy of Music í London. Að námi loknu réði Jóhann Smári sig við Kölnaróperuna og var þar í þrjú ár. Jóhann var einnig fjögur ár á föstum samningi við óperuna í Regensburg.
Jóhann hefur sungið sem gestasöngvari við fjölda óperuhúsa í Evrópu. Hann hefur starfað með ýmsum frægum hljómsveitastjórum, meðal annarra Bernard Haitink, Kent Nagano, James Conlon og Gennadi Rozhdestvensky, og þekktum hljómsveitum á borð við London Philharmonic, BBC Concert Orchestra, Gurzenich Orchester og WDR útvarpshljómsveitina í Köln. Jóhann hefur sungið yfir 50 hlutverk á ferlinum, þar á meðal Barón Ochs, Filippo II, Don Manifico, Sarastró, Lepórelló, titilhlutverkið í Mefistofele, Roccó Daland í Hollendingnum fljúgandi, Fígaró, titilhlutverkið í Gianni Schicci og Tevje í Fiðlaranum á þakinu. Meðal verka á tónleikum eru Requiem Verdis, Requiem Mozarts, 9. sinfónía Beethovens, 8. sinfónía Mahlers og Sköpunin eftir Haydn. Jóhann hefur haldið ljóðatónleika hérlendis og erlendis. Hann söng hlutverk Trulove í uppsetningu Íslensku óperunnar á Flagara í framsókn (The Rake's Progress) haustið 2006 og Grenvil lækni í La traviata árið 2008.
