Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir

Dagskrá listahátíðar 2009

list&ást&list

Norræna húsið

hessismore

 21. – 24. maí

Fim 21. maí 15.00
Fös 22. kl. 17.00
Lau og sun 23. og 24. maí kl. 15.00

 

Við leitumst við að sýna fram á að hinar ýmsu birtingarmyndir listrænnar tjáningar geti rakið uppruna sinn til einnar og sömu uppsprettu.  Markmiðið er ævinlega að gera áhorfandann að þátttakanda í verkinu. Skreytingar, popptónlist og afþreyingarbókmenntir gera ekki þessa kröfu til áhorfandans, heldur ýta undir vellíðan og fullnægju.
Hins vegar krefst listin afskipta áhorfandans, að hann verði virkur þátttakandi í verkinu. Umhverfið skiptir skreytingar, popptónlist og afþreyingarbókmenntir miklu máli en í list er innihald og tjáskipti þungamiðja verksins.
Þessir tveir flokkar standa hins vegar ekki alltaf í andstæðu hvor við annan, enda þarf list ekki endilega að sýna skuggahliðar samfélagsins eða manneskjunnar, andstætt fegurð og jákvæðni, til þess að geta talist listaverk.

Allt snýst um aðild áhorfandans að verkinu. Þessir tveir, listamaðurinn og áhorfandinn, skapa gagnvirkt samband þar sem verkið er hvati.

list&ást&list er ekki ætlað að vera tækifæri áhorfenda til að fylgjast með listamanninum að verki, né listamannsins til að fanga áhorfendur í hinu listræna ferli sem einhver lærifaðir. Hér verður reynt að skapa vettvang þar sem tveir hópar hittast sem jafningjar, sem er forsenda þess að listaverkið komi af stað skoðanaskiptum. list&ást&list reynir að afhjúpa þetta samband með því að afhjúpa tímann sem þátt.

Tíminn sem listamaðurinn notar í listaverkið blandast saman við tímann sem áhorfandinn notar til að samlaga sig listaverkinu. Áhorfandinn er ef til vill aðlagaður og tengdur saman við listræna tjáningu þar sem listaverkið verkar sem fundarstaður þeirra beggja.

Við viljum reyna að sýna fram á og víkka út tímann sem forsendu hins listræna ferlis –– að gera sýnilega tengingu tíma listamannsins við gerð verksins og tíma áhorfandans við samlögun að verkinu.

 

Nánari upplýsingar á:

www.nordice.is

http://daysofartandlove.dk/listogastoglist

 

Listamenn:

Anna Helga Henning (NO)

Andrea Hörður Harðarson (ÍS)

Björk Viggósdóttir (ÍS)

Bård Ask (NO)

Egill Sæbjörnsson (ÍS)

Einar Már Guðmundsson (ÍS)

“Extension Trio” (DK)

“Hess is more” (DK)

Hulda Hákon (ÍS)

Johanna Gustafsson Fürst (SE)

Jógvan Sverrason Biskopstø (FO)

Jörgen Svensson (SE)

Katerina Mistal (SE)

Ólöf Arnalds (ÍS)

Petri Ala-Maunus (FI)

Sara Riel (ÍS)

Steingrímur Eyfjörð (ÍS)

Vebjörg Hagene Thoe (NO)


 

Dagskrá

Fimmtudagur 21. maí 2009: kl. 15:00

 

Sýningarstjóri: Poul R. Weile (DK)

 

Kynnar: Charlotte Böving/Benedikt Erlingsson (ÍS)

 

15:00     Opnun Nýhil (ÍS): Poetry Circus

 

17:00     "Extension trio" v./Mette Stig Nielsen (DK):

                Frumleg samtimatónlist

 

18:00     Steingrímur Eyfjörð (ÍS): “The Orgone Box“

 

20:00     Johanna Gustafsson Fürst (SE): “Hetropolis”

 

21:00     Ólöf Arnalds, Ásdís Sif Gunnarsdóttir (ÍS):

                “Out Of My Brain”, tónlist/innsetning

 

 

Föstudagur 22. maí 2009: kl. 17:00

 

17:00     Bård Ask (NO): Innsetning

 

18:00     Sara Riel (ÍS): “Maðurinn á bak við tjaldið”

 

20:00     Jörgen Svensson (SE): ”Heimurinn handan götunnar”

 

21:00     Andrea Hörður Harðarsson, Einar Már Guðmundsson (ÍS):

               ”Performative Dance and Literature as Collage”

 

 

Laugardagur 23. maí 2009: kl. 15:00

 

15:00     Katerina Mistal (SE): ”Innsetningin”

 

16:00     Egill Sæbjörnsson (ÍS): ”Timaáætlun”

 

17:00     Petri Ala-Maunus (FI): ”Metalkántrý”

 

18:00     Anna Helga Henning (NO): ”Falin gull”

 

21:00     ”Hess Is More” (DK): Tónleikar

 

 

Sunnudagur 24. maí 2009 kl. 15:00

 

15:00     Björk Viggósdóttir (ÍS):”Dansgjörningur og gagnvirk samskipti”

                

16:00     Hulda Hákon    (ÍS): ”294.989”

 

17:00     Jógvan Sverrason Biskopstø (FO): ”Nótt á Íslandi”        

 

18:00     Vebjörg Hagene Thoe (NO): ”Heimsálfurnar eru að hreyfast”


 

Tengt efni

Prenta greinina Senda grein



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica