Dagskrá listahátíðar 2009
NORSKAR HJÓLHÝSAKONUR
Norskar hjólhýsakonur víðsvegar um Reykjavík 16. - 31. maí
5 stórir skúlptúrar á hjólum eftir Marit Benthe Norheim. Tónlist eftir Geir Johnson.
Þri. 19.5 - Nauthólsvík bílastæði
Mið. 20.5 - Nauthólsvík bílastæði
Fim. 21.5 - Sólfarið við Sæbraut
Fös. 22.5 - Sólfarið við Sæbraut
Lau. 23.5 - Þvottalaugar Laugardal frá kl. 13
Sun. 24.5 - Þvottalaugar Laugardal
Mán. 25.5 - Þvottalaugar Laugardal
Þri. 26. maí til og með sun. 31. maí kl. 10 - 19 - Hljómskálagarðurinn
Sýningin Campingkvinner hverfist um hjólhýsi frá 6. og 7. áratugunum. Hjólhýsið er lifandi tjaldferðalag, ferðalangur, færanlegt heimili, minningar hinnar þröngbýlu fjölskyldu – huggulegheit og sumarfrí eða sprengikrafturinn í öllum þessum grunnþáttum. Einnig má sjá í verkunum sögur sem tengjast sígaunum, sirkusfólki og öðrum flökkuhópum.
Marit Benthe Norheim fæddist í Noregi árið 1960 og býr nú í Danmörku. Hún nam myndlist við Ríkislistaskólann í Bergen í Noregi og við farandakademíu víðs vegar um Evrópu, þar á meðal í fimm mánuði í Ítalíu, og við Konunglega listaháskólann í London. Í framhaldi af því námi bjó hún og starfaði í London frá 1984 til 1995. Norheim hefur haldið fjölda sýninga, bæði ein og með öðrum, og tekið að sér stór verkefni í Noregi, Danmörku, Englandi, Svíþjóð, á Íslandi og á Grænlandi. Verk hennar eru á ýmsum almenningssöfnum, svo sem Norskra samtímalistasafninu og Norska ríkislistasafninu og á Glyptótekinu í Kaupmannahöfn. Hún hefur verið kennari við fjölda listaháskóla, meðal þeirra Konunglega listaháskólann og Central Saint Martin listaskólann í London. Mörg stærri verka hennar á opinberum svæðum vinna með samfélagslega þátttöku og í tveimur þeirra nýtir hún sér kvenpersónur úr verkum Henrik Ibsen. Annað þeirra er Konan frá hafinu, kennt við samnefnt leikrit, sem stendur við höfnina í Sæby í Danmörku; hitt er Jómfrúarrottan úr leikritinu Eyjólfi litla, sjö metra höggmynd alsett augum úr postulíni sem 2300 börn tóku þátt í að vinna í Skien, fæðingarborg Ibsens, í tilefni af 100 ára ártíð skáldsins árið 2006.
