Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir

Texti

LISTIN BREYTIR HEIMINUM - listin viðheldur óbreyttu ástandi

Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir

Hjálmar Sveinsson stýrir málþingi á vegum Listahátíðar og fyrirlesarar eru Eiríkur Örn Norðdahl, María Kristjánsdóttir, Þórunn Erlu Valdimarsdóttir, Hjálmar H. Ragnarsson, Gestur Guðmundsson og Ragna Sigurðardóttir.

 
Merki Listahátíðar í Reykjavík

LISTIN BREYTIR HEIMINUM,

Kjarvalsstaðir

listin viðheldur óbreyttu ástandi

 
hessismore

list&ást&list

Norræna húsið

Norræna húsið

Við leitumst við að sýna fram á að hinar ýmsu birtingarmyndir listrænnar tjáningar geti rakið uppruna sinn til einnar og sömu uppsprettu.  Markmiðið er ævinlega að gera áhorfandann að þátttakanda í verkinu. Skreytingar, popptónlist og afþreyingarbókmenntir gera ekki þessa kröfu til áhorfandans, heldur ýta undir vellíðan og fullnægju.

 
Laugavegur þvottamynd

Laugavegurinn - gengið á vit sögunnar

Lækjartorg - Laugavegur - Laugardalur

Lækjartorg - Laugavegur - Laugardalur

Listamannahúsið START ART stendur fyrir gjörningi tileinkuðum þeim konum sem þvoðu þvott í gömlu þvottalaugunum í Laugardal.

 
Maine, Girl on Bridge

ALLIR MYNDLISTARVIÐBURÐIR

Í Reykjavík og víðar

Um allt land

Fjölmargir myndlistarviðburðir verða á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2009 um land allt.

 
Campingkvinner

NORSKAR HJÓLHÝSAKONUR

Á götum úti

Norskar hjólhýsakonur víðsvegar um Reykjavík 16. - 31. maí. 5 stórir skúlptúrar á hjólum eftir Marit Benthe Norheim. Tónlist eftir Geir Johnson.

 
Brennið þið vitar

BRENNIÐ ÞIÐ, VITAR!

Í öllum landsfjórðungum

Myndlist í fjórum vitum, einum í hverjum landshluta á Listahátíð

Listahátíð í Reykjavík 2009 stendur í sumar að myndlistarsýningu í fjórum vitum hringinn í kringum landið, einum í hverjum landsfjórðungi. Listamönnum hefur verið boðið að setja upp verk sín í vitunum, sem verða opnir ferðalöngum fram yfir verslunarmannahelgi.

 
Strange Fruit

FORBOÐNIR ÁVEXTIR

Í miðborginni

Strange Fruit eru litríkir og hrífandi götulistamenn frá Melbourne í Ástralíu sem mun setja svip sinn á borgina á opnunarhelgi Listahátíðar í Reykjavík, 15. og 16. maí, bæði við setningu hátíðarinnar og einnig daginn eftir í miðborg Reykjavíkur.

 
Í Óðamansgarði

Í Óðamansgarði

Þjóðleikhúsið

Færeysk ópera

Í Óðamansgarði var frumsýnd í Þórshöfn haustið 2006 og verður sett upp í nýrri sviðsetningu á Listahátíð í samvinnu Þjóðleikhússins og Tjóðpallsins í Færeyjum.

 
Hel - ópera

HEL - ný íslensk ópera

Íslenska óperan

Ný íslensk ópera eftir Sigurð Sævarsson byggð á samnefndri sögu Sigurðar Nordal.

 


Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica