Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
Stofutónleikar
Tomas R. Einarsson

Tómas R. Einarsson

Grafinn bassi

 

24. maí kl. 19.00

Reynimel 24 (bílskúr), 107 Reykjavík

 

Tónleikarnir fara fram í bílskúr og áheyrendur sitja í kringum tveggja metra djúpa gryfju. Í gryfjunni stendur Tómas R. Einarsson með kontrabassa og fótstigna bjöllu og spilar. Tónar hljóðfærisins berast því að neðan og er það afar viðeigandi; hlutverk kontrabassans er falið í því að gefa dýptina í hljóm tónlistarinnar. Í gryfjunni munu þó ekki bara óma dýpstu nótur bassans, heldur verður farið um allt tónsvið hans. Hljóðfæraleikarinn afklæðist undirleikarahlutverkinu og bregður sér í hlutverk blásarans og gítarleikarans eftir því sem andinn innblæs; sér um undirleik og yfirleik. Efnisskráin byggist á fjölbreyttu úrvali af latínóstefjum Tómasar R. Einarssonar af geisladiskunum Kúbanska, Havana og Romm Tomm Tomm. Þau stef mynda rammann um tónleikana, en spuninn er jafngildur og þess vegna verður efnisskránni ekki lýst nákvæmlega; spunaþátturinn felur í sér óvissuna og spennuna. Í gryfjunni munu þannig óma bóleróar, bassa-chachacha, bíbopplínur og blúshendingar í bland við þá tóna sem spretta fram undan fingrunum í hita leiksins. Hljóðfæraskipan: kontrabassi og bjalla (fótstigin)



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica