Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir

Stofutónleikar

Í stofum tónlistarmanna um alla borg

Framúrskarandi tónlistarmenn og hópar úr sígildri tónlist, djassi, poppi, rokki, raftónlist og fleiri kimum koma fram og leika tónlist í einstakri nálægð við áheyrendur á Stofutónleikum Listahátíðar í Reykjavík. Alls verða Stofutónleikarnir 25 á jafnmörgum heimilum víðsvegar um Reykjavík helgina 22.-24. maí.

Lesa meira
 

Benda slagverkshópur

Benda slagverkshópur

Í Músíkfabrikkunni koma saman nokkrir hljómlistarmenn, sem mynda slagverkshópinn Bendu en samanlagður er lífaldur þeirra um 250 ár. Píanistinn og söngkonan, sem auk þess eru bæði tónsmiðir, gefa fyrirheit um að kannski verði eitthvað frumsamið efni á boðstólum.

Lesa meira
 

Ólöf Arnalds

Ólöf Arnalds

Á tónleikunum mun Ólöf leika og syngja eigin lög, gömul og ný í bland, auk annarra laga og lagstúfa úr ýmsum áttum.

Lesa meira
 

Reykjavík!

Reykjavik!

Stofutónleikar rokksveitarinnar Reykjavík! fara fram í æfingahúsnæði í miðbæ Reykjavíkur sem sveitin deilir með aragrúa tónlistar- og myndlistarmanna. Þar mun Reykjavík! flytja tæplega dagskrá sem samanstendur af verkum af breiðskífunni THE BLOOD, sem kom nýverið á markað, auk þess sem frumflutt verða ný verk.

Lesa meira
 

Vicky

Vicky

Hljómsveitin Vicky ætlar að bregða út af vananum, tóna sig niður og halda órafmagnaða tónleika með notalegri stemmningu í heimahúsi að Holtsgötu.

Lesa meira
 

Bloodgroup

Bloodgroup

Rafpoppsveitin Bloodgroup hefur látið að sér kveða á innlendum og erlendum vettvangi frá stofnun sveitarinnar árið 2005. Fyrsta plata Bloodgroup, Sticky Situation hlaut lof gagnrýnenda og hlustenda.

Lesa meira
 

Retro Stefson, FM Belfast og MC Plútó

Retro Stefson, FM Belfast og MC Plútó

Hljómsveitirnar Retro Stefson og FM Belfast koma saman og spila á Ingólfsstræti 21a, en það er heimili Þorbjargar, annars hljómborðsleikara Retro Stefson.

Lesa meira
 

Weirdcore

Weirdcore
Weirdcore

er félagsskapur raftónlistarmanna sem hefur staðið að tónleikum og útgáfu á íslenskri raftónlist. Með þátttöku sinni í Listahátíð freistar hópurinn þess að kynna fyrir nýjum hlustendum efni sem er á jaðri dans/raftónlistar í dag.

Lesa meira
 

Áshildur Haraldsdóttir og Katie Elizabeth Buckley

Áshildur og Katie

Efnisskrá tónleika Áshildar Haraldsdóttur flautuleikara og Katie Elizabeth Buckley hörpuleikara spannar fjórar aldir og þrjár heimsálfur. Hér gefst tækifæri til að kynnast ólíkum hliðum hörpunnar og flautunnar.

Lesa meira
 

Benóný Ægisson

Benóní Ægisson

Benóný flytur frumsamda blúsa, mansöngva, drykkjuvísur og baráttusöngva á stofutónleikum sínum og umfjöllunarefnin eru íslenska efnahagsviðundrið, sunnudagsmorgnar í 101 Reykjavík, sjómenn í landi og afdrif 68-kynslóðarinnar, svo nokkuð sé nefnt.

Lesa meira
 

Gershwin í Mýrinni

“Gershwin í Mýrinni”

Hugmyndin að “Gershwin í Mýrinni” kviknaði þegar hjónaleysin Hulda Björk Garðarsdóttir sópran og Ólafur Egill Stolzenwald kontrabassi sátu yfir kvöldkaffi í stofunni og virtu fyrir sér aðstæður.

Lesa meira
 

Spilmenn Ríkínís

Spilmenn Ríkínis

Tónlistarhópurinn Spilmenn Ríkínís var stofnaður til að flytja íslenska tónlist frá því um og eftir siðaskipti. Um er að ræða tónlist úr handritum og af prenti, en einnig íslensk þjóðlög.

Lesa meira
 

Ásgerður Júníusdóttir

Ásgerður Júníusdóttir

Ásgerður flytur Miðillinn sem er mónó-ópera eftir enska lárviðartónskáldið Peter Maxwell Davis í íslenskri þýðingu Sjón.

Lesa meira
 

Melchior

Melchior

Hljómsveitin Melchior hefur allt frá stofnun sveitarinnar árið 1973, flutt dæmigerða frumsamda stofutónlist. Þótt tónlistina megi flokka sem popp, hafa sígíld hljóðfæri, s.s. selló, óbó, fiðla og lágfiðla, leikið lykilhlutverk í útsetningum og rafmögnun tónlistarinnar hefur ætíð verið mjög hófleg.

Lesa meira
 

Jón Ólafsson

Jón Ólafsson

Jón Ólafsson ætlar sitja við sinn flygil og flytja eigið efni frá ýmsum tímum. Er af nógu að taka, því lögin sem maðurinn hefur samið hlaupa á hundruðum.

Lesa meira
 

Sigrún Hjálmtýsdóttir og Stofukvartettinn

Sigrún Hjálmtýs og Stofukvartettinn

STEFNUMÓT - tríó í nokkrum smáatriðum fyrir fiðlu, bassaklarinett og marimbu er eftir Jóhann G. Jóhannsson. Tónlistin var samin veturinn 1989-1990 fyrir samnefnda sýningu Þjóðleikhússins í tilefni 40 ára afmælis leikhússins, þar sem færðir voru upp einþáttungar eftir nokkur erlend leikskáld.

Lesa meira
 

amiina

Amiina

Hljómsveitin amiina býður til stofutónleika að Grundarstíg 10 í hjarta Reykjavíkur. Húsið, sem er afar reisulegt, var byggt af Hannesi Hafstein skáldi árið 1915. Þar er hátt til lofts og vítt til veggja og mun amiina leitast við að glæða stofurnar lífi með tónlist, líkt og gert var á árum áður fyrir tíma útvarps og grammófóns.

Lesa meira
 

Melakvartettinn

Melakvartettinn
Melakvartettinn

var stofnaður á haustdögum 2008 og kemur því fram opinberlega í fyrsta sinn á Listahátíð í Reykjavík. Meðlimir kvartettsins eru félagar í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Á Listahátíð mun Melakvartettinn flytja fjórtánda strengjakvartett Schuberts; Dauðinn og stúlkan.

Lesa meira
 

Dvorák-hópurinn

Dvorák

Strengjakvintett nr. 2 í G-dúr var frumfluttur 18. mars 1876 í Prag en er nú í flutningi Dvorák-hópsins. Á köflum má greina slavneskt yfirbragð þótt minna beri á því þjóðlega ívafi sem Dvorák er þó þekktur fyrir í verkum sínum.

Lesa meira
 

Bergþór Pálsson, Signý Sæmundsdóttir og Þóra Fríða Sæmundsdóttir

Bergþór Pálsson, Signý Sæmunds og Þóra Fríða

Efnisskráin samanstendur af íslenskum lögum og ljóðum sem tengjast vori og sumarkomu. Flutt verða íslensk sönglög og dúettar eftir Sigvalda Kaldalóns, Jón Ásgeirsson, Jórunni Viðar og fleiri.

Lesa meira
 

Felix Bergsson og Jón Ólafsson

Felix Bergsson

Felix Bergsson leikari og söngvari, opnar heimili sitt fyrir gestum og býður upp á tónleika fyrir alla fjölskylduna á Listahátíð.

Lesa meira
 

Valgerður Andrésdóttir og Ingibjörg Guðjónsdóttir

Valgerður Andrésdóttir og Ingibjörg Guðjónsdóttir
Ingibjörg Guðjónsdóttir

sópransöngkona og Valgerður Andrésdóttir píanóleikari flytja efnisskrá með tónlist úr söngleikjum, kabarettum og fleiru.

Lesa meira
 

Nordic Affect

Nordif Affect

Nordic Affect, sem er skipað Höllu Steinunni Stefánsdóttur barokkfiðluleikara og Guðrúnu Óskarsdóttur semballeikara, ætlar á stofutónleikum sínum í Þingholtunum að ferðast í tónum og tali þvers og kruss um barrokktímabilið.

Lesa meira
 

Kristjana Stefáns og Agnar Már Magnússon

Kristjana Stefáns og Agnar Már

„Hvar er tunglið?“ er flokkur tuttugu og fjögurra laga eftir Sigurð Flosason (lög) og Aðalstein Ásberg Sigurðsson (ljóð). Lögin komu út á samnefndum tvöföldum geisladiski árið 2006 í flutningi Kristjönu Stefánsdóttur og jazzkvartetts Sigurðar Flosasonar.

Lesa meira
 

Tómas R. Einarsson

Tomas R. Einarsson

Tónleikarnir fara fram í bílskúr og áheyrendur sitja í kringum tveggja metra djúpa gryfju. Efnisskráin byggist á fjölbreyttu úrvali af latínóstefjum Tómasar R. Einarssonar af geisladiskunum Kúbanska, Havana og Romm Tomm Tomm.

Lesa meira
 

Duo Landon

Duo Landon

Duo Landon skipa fiðluleikararnir Hlíf Sigurjónsdóttir og Martin Frewer, en þau leika bæði á fiðlur sem hinn þekkti franski fiðlu- og bogasmiður Christophe Landon hefur smíðað.

Lesa meira
 


Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica