Víkingur Heiðar Ólafsson
Einleikstónleikar
Um viðburðinn
Píanósnillingurinn Víkingur Heiðar Ólafsson - Einleikstónleikar
Víkingur Heiðar Ólafsson (1984) er nú þegar orðinn stórstjarna í tónlistarheiminum. Stemningin á tónleikum hans er gjarnan eins og á rokktónleikum. Víkingur hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir leik sinn, m.a. Íslensku tónlistarverðlaunin 2004 í flokknum Bjartasta vonin og í flokknum Flytjandi ársins árið 2007. Þá þótti hann bestur bestu píanónemenda Juilliard-tónlistarskólans í New York í túlkun sinni á verki Bartóks í febrúar á síðasta ári, en skólinn er almennt álitinn einn besti tónlistarskóli sem um getur. Í fyrra lauk Víkingur sex ára háskólanámi frá Juilliard listaháskólanum. Víkingur vann við upptökur á verkum eftir Beethoven og Brahms sem kemur út á tónleikadaginn. Á einleikstónleikum Listahátíðar flytur Víkingur Heiðar eigin sönglagaumskrifanir eftir þjóðþekkt tónskáld eins og Sigvalda Kaldalóns, Emil Thoroddsen og Pál Ísólfsson, í bland við Bach, Debussy, Ligeti, Bartok og Chopin.
UPPSELT
Tónleikarnir eru tæpir 2 tímar með hléi.
Um listamanninn
Víkingur Heiðar þreytti frumraun sína með Sinfóníuhljómsveit Íslands aðeins sextán ára gamall þegar hann lék fyrsta píanókonsert Tchaikovskys. Síðan hefur hann komið reglulega fram með hljómsveitinni og leikið konserta eftir Bartók, Beethoven, Daníel Bjarnason, Jón Nordal, Prokofiev, Ravel, Shostakovich og Rachmaninoff. Hann hefur haldið fjölda tónleika, m.a. á Spáni, í Frakklandi, Rúmeníu, Lettlandi, Kanada, Færeyjum og Bandaríkjunum og leikið einleik með Caput, Kammersveit Reykjavíkur og New Juilliard Ensemble. Í tilefni útskriftarinnar frá Julliard tónlistarháskólanum hélt Víkingur tvenna einleikstónleika, en þar með lauk sex ára námi hjá Robert McDonald og Jerome Lowenthal. Auk þess flutti hann þriðja píanókonsert Bartóks ásamt hljómsveit skólans undir stjórn Roberto Abbado. Tónleikarnir, sem haldnir voru í Avery Fisher Hall - sal New York Fílharmóníunnar - voru haldnir í kjölfar sigurs hans í píanókeppni skólans.
Árið eftir útskrift hefur verið viðburðaríkt. Meðal helstu verkefna má nefna tónleika í Bozar salnum í Brussel, tveggja vikna tónleikaferð um Kína, upptökur á öðrum píanókonsert Snorra Sigfúsar Birgissonar, afmælistónleika Atla Heimis Sveinssonar, og tónleika í framhalds- og háskólum á Íslandi ásamt Árna Heimi Ingólfssyni, þar sem þeir spiluðu og spjölluðu um tónlist. Víkingur flutti einnig þriðja píanókonsert Bartóks með Sinfóníuhljómsveit Íslands og frumflutti annan píanókonsert Daníels Bjarnasonar með hljómsveitinni.
Í október vann Víkingur við upptökur á verkum eftir Beethoven og Brahms fyrir fyrsta einleiksgeisladisk sinn. Diskurinn var tekinn upp í Gewandhaus tónleikahöllinni í Leipzig og kemur út 17. maí í tilefni fyrstu einleikstónleika Víkings í Háskólabíó á Listahátíð í Reykjavík. Víkingur hefur undanfarin ár notið styrks úr Minningarsjóði um Birgi Einarsson apótekara.
Efnisskrá
Jóhann Sebastían Bach (1685-1750) Partíta nr. 5 í G dúr, BWV 829
Preambulum
Allemande
Corrente
Sarabande
Tempo di Minuetto
Passepied
Gigue
Claude Debussy (1862-1918) Bruyéres
Ondine
Feux d'artifice
Béla Bartók (1881-1945) Píanó sónata BB 88
Allegro moderato
Sostenuto e pesante
Allegro molto
Hlé
Emil Thoroddsen (1898-1944) (úts. VHÓ) Vöggukvæði
Sigvaldi Kaldalóns (1881-1946) (úts. VHÓ) Sofðu sofðu góði
Ave María
Páll Ísólfsson (1893-1974) (úts. VHÓ) Í dag skein sól frumfl.
Máríuvers frumfl.
Sigvaldi Kaldalóns (úts. VHÓ) Á Sprengisandi frumfl.
Frédéric Chopin (1810-1849) Þrjú næturljóð ópus 15
Andante cantabile
Larghetto
Lento
Ballaða nr. 4 í f moll ópus 52
Andante con moto
