Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2009
Trio Nordica 2

TRIO NORDICA

 

Um viðburðinn

 

 

Trio Nordica, rómantík á Listahátíð

 

Trio Nordica var stofnað árið 1993 af þeim Auði Hafsteinsdóttur fiðluleikara, Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara, sem eru í hópi fremstu hljóðfæraleikara landins, og Monu Kontra, kunnum píanóleikara frá Svíþjóð, og fagnar því 15 ára afmæli sínu um þessar mundir.

Meðlimir tríósins hafa allar fengið ýmsar viðurkenningar og frábæra dóma og komið fram á fjölmörgum geisladiskum, m.a. hjá Japis, King Records, Bis og Naxos.

Trio Nordica hefur leikið á Íslandi, í Svíþjóð, Danmörku, Frakklandi, Ítalíu, Þýskalandi, Bandaríkjunum og Kanada og margoft komið fram í útvarpi og sjónvarpi. Einnig hafa meðlimir þess tekið þátt í fjölmörgum tónlistarhátíðum, t.d. Prussia Cove, Banff, Tanglewood og Aspen. Þá eru meðlimir tríósins listrænir stjórnendur Kammertónlistarhátíðar Trio Nordica á Kjarvalsstöðum.

Trio Nordica hefur haft fjölda verka á efnisskrám sínum. Fyrir utan helstu píanótríó tónbókmenntanna leggur það áherslu á að flytja verk eftir konur, norræn píanótríó og nútímaverk. Nýlega lauk Trio Nordica upptökum á geisladisk með verkum eftir Elfridu Andrée, sem gefinn verður út af INTIM musik í Svíþjóð, en sum þessara verka hafa ekki verið gefin út áður á geisladisk.

Á fyrstu tónleikum Trio Nordica á Listahátíð leggur það áherslu á að kynna nýja Norræna tónlist. Er nýtt verk eftir Þórð Magnússon liður í því. Einnig eru á efnisskrá hið vinsæla píanótríó nr. 1 í d-moll eftir Felix Mendelssohn, í tilefni 200 ára afmælis hans í ár og hið hárómantíska verk Toivo Kuula, Píanótríó op. 7.

 

Í framhaldi af tónleikum á Listahátíð heldur Trio Nordica tónleika með sömu efnisskrá í Svíþjóð og Finnlandi, en meðlimir Trio Nordica eru nú búsettir í þremur löndum; á Íslandi, Svíþjóð og Finnlandi.

 

Tónleikarnir eru um 2 klst. með hléi.


 

Efnisskrá

Jean Sibelius (1865-1957)

                Allegro í D-dúr

Þórður Magnússon (1973)

                Scherzo (frumflutningur)

Felix Mendelssohn (1809-1847)

                Píanótríó nr.1, í d-moll op.49

                Molto allegro ed agitato

                Andante con moto tranquillo

                Scherzo (leggiero e vivace)

                Finale. Allegro assai appassionato

                Hlé

Toivo Kuula (1883-1918)

                Píanótríó op. 7

                Moderato assai

                Scherzo (Allegro con brio)

                Andante elegico

                Finale (Allegro vivace)


Umsagnir

“Sannfæringarkrafturinn var gríðarlegur og dulúð tónlistarinnar, náttúrustemningin og nostalgían sem ógerningur er að skilgreina með orðum, heltók mig og hélt mér föngnum út allt verkið.

Samspilið var sérlega nákvæmt, jafnvægið í styrkleika milli hljóðfæranna fullkomið og túlkunin áreynslulaus, en samt gædd rétta tilfinningahitanum.”

Jónas Sen, Morgunblaðið, 2008

 

“Þetta voru skemmtilegir tónleikar, efnisskráin var vönduð og metnaðarfull, spilamennskan var himnesk.  Er hægt að biðja um meira ? “

Jónas Sen, Morgunblaðið 1. 12. 2007

 


 



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica