Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2009
Völuspá

VÖLUSPÁ

 

Landnámssetrinu í Borgarnesi 23. maí kl. 17.00

Miðasala á Landnámssetrinu í Borgarnesi í síma 4371600 eða á vef Landnámsetursins.

 

Seiður völvunnar

Sköpun – Ragnarök – Ný fæðing 

 

Yggdrasill, lífsins tré, veslast upp og hinn

dimmi dreki flýgur yfir, með líkin í fjöðrunum.

 

Spádómur völvunnar er sýnilegur á mörgum sviðum í því samfélagi sem við höfum búið okkur í dag, en við hlustum ekki, sjáum ekki og þykjumst ekki skilja. En við eigum von um nýja fæðingu, nýtt upphaf. Sú von er fólgin í þeim skilaboðum sem “Seiður völvunnar “ flytur.

Tónlistin er drifkraftur sýningarinnar. Hljóðheimur radda, hryns, takta,frumkrafta, seiðs og hins annarlega söngs völvunnar. 

Völvurnar þrjár, Urður, Verðandi og Skuld, leiða okkur í allan sannleikann um sköpun heimsins, ragnarök og nýtt upphaf.

Flekkleysi völvunnar er túlkað af hvíslandi rödd barns.

 Tryggvi Gíslason, magister, rekur efni Völuspár við upphaf verks og leggur áherslu á sköpunina, ragnarök og endurfæðingu, eins og segir í undirtitli verksins. Auk þess mun hann segja frá dulúð og rótum Völuspár, töfrum þess og tala um stíleinkenni kvæðisins.

Höfundar og flytjendur: Sten Sandell og Sverrir Guðjónsson

Leikmynd og búningar: Elín Edda Árnadóttir

Kvikar myndir:           R A X

“Rætur Völuspár“ :   Tryggvi Gíslason, magister

 

BRÆÐUR MUNU BERJAST

OG AÐ BÖNUM VERÐA

MUNU SYSTRUNGAR SIFJUM SPILLA

HART ER Í HEIMI

HÓRDÓMUR MIKILL

SKEGGÖLD, SKÁLMÖLD

SKILDIR ERU KLOFNIR

VINDÖLD, VARGÖLD

ÁÐUR VERÖLD STEYPIST

MUN ENGI MAÐUR ÖÐRUM ÞYRMA

                                                                       ( Völuspá – Ragnarök )

 

 

 



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica