Kammersveit Reykjavíkur
Um viðburðinn
Konur úr Austurvegi - tónverk þekktustu kventónskálda austursins

Kammersveit Reykjavíkur flytur verk eftir fjögur þekktustu kventónskáld austursins á Listahátíð og stýrir hinn rússneski stjórnandi og píanóleikari, Vladimir Stoupel, tónleikunum. Þykir túlkun hans á sígildri tónlist í senn vera næm og kraftmikil.
Kventónskáldin eru:
• Sofia Gubaidulina frá Crisopol í Tatar lýðveldinu
• Frangis Ali-Sade frá Baku í Azerbajan
• Lera Auerbach frá Chelyabinsk í Úralfjöllum
• Teh Tze Siew frá Pulau Pinang í Malasíu
Einleikarar á tónleikunum verða Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari, sem jafnframt er listrænn stjórnandi Kammersveitarinnar, Sigurður Bjarki Gunnarsson, sellóleikari, Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari, Frank Aarnink, slagverksleikari, Sigurgeir Agnarsson, sellóleikari og Hrólfur Vagnsson, sem leikur á rússnesku harmónikkuna bayan.
Um Kammersveit Reykjavíkur: www.kammersveit.is/Default.asp?Page=242
Tónleikarnir eru um 2 tímar með hléi.
Um tónskáldin
Þótt ung sé að árum á Lera Auerbach fjölbreyttan feril að baki, bæði sem frábær píanóleikari og tónskáld. Hún er eitt vinsælasta tónskáld sinnar kynslóðar og hafa verk hennar verið flutt af fjölda þekktra kammersveita, sinfóníuhljómsveita og kvartetta, m.a. í Carnegie Hall, Kennedy Center, Lincoln Center og hjá Bolshoi í Moskvu.
Frangis Ali-Sade er einnig mjög þekkt sem píanóleikari, einkum af flutningi eigin verka. Í tónsmíðum sínum reynir hún að brúa bilið á milli vestrænnar tónlistar og þjóðlegrar tónlistar úr austri. Það vakti mikla athygli þegar Kronos-kvartettinn flutti verk hennar Oasis í Barbican Center í London í byrjun árs 2005.
Teh Tze Siew er mikilvirkur píanóleikari, kennari og tónskáld af yngri kynslóðinni og verk hennar hafa hlotið verðlaun í tónskáldakeppni í Malasíu. Hún hefur samið verk fyrir misstóra kammerhópa, sinfóníuhljómsveit, verk fyrir söngvara og fjölda píanóverka.
Sofia Gubaidulina er sú eina þessarra tónskálda sem verk hafa verið leikin eftir á Íslandi, þó allar séu þær mjög þekktar víða um heim, enda er Gubaidulina eitt helsta tónskáld Rússa. Sjálf hefur hún lýst því hvernig tónlistin varð mikilvægasti þátturinn í lífi hennar á þann veg að hún hafi alist upp í algerlega líflausu umhverfi þar sem, snauðu af gróðri og dægrastyttingu, en þegar henni áskotnaðist píanó hafi örlög hennar verið ráðin. Verk hennar eru flutt um allan heim af listamönnum, s.s Gidon Kremer, Yuri Bashmet, Mstislav Rostropovich, Kronos-kvartettinum, Gennady Rozhdestvenskj og Sir Simon Rattle.
Um stjórnandann
Vladimir Stoupel fer ótroðnar slóðir í túlkun sinni og tónheimur hans og tilfinningaróf eru einstaklega margbrotin. Hann hlaut nýlega mikið lof í The Washington Post fyrir “óvenjulega blæbrigðaríka túlkun” og Der Tagesspiegel Berlin var leik hans lýst sem svo að hann væri “töfrandi og þéttriðið net hughrifa”. Hann hefur einstakt vald á tækni hljómborðsins og getur því þanið hljóðfæri sitt út að ystu mörkum tjáningarhæfni þess og heillað áheyrendur sína inn í spennuþrunginn tónheim sinn. Hann hljóðritaði nýlega allar píanósónötur Scriabins hjá Audite og hlaut þá umsögn hjá ARTE að þetta væri “ein besta fáanlega heildarútgáfa á píanósónötum Scriabins”, auk þess sem útgáfan fékk “Excellentia” verðlaun tónlistartímaritsins Pizzicato. Árið 2007 bætti Stoupel tveimur geisladiskum í viðamikið hljóðritasafn sitt, Life of the Machines og Elegy for the Jewish Villages, hjá útgáfunni EDA.Vadimir Stoupel hefur komið fram sem einleikari með hljómsveitum á borð við Berlínarfílharmóníuna, Konzerthaus hljómsveitina í Berlín, Gewandhaus hljómsveitina í Leipzig , Sinfóníuhljómsveit bæverska útvarpsins og Sinfóníuhljómsveit útvarpsins í Berlín.
Efnisskrá
Konur úr austurvegi
- Lera Auerbach Serenaða fyrir sorgþrungið haf, op. 68 fyrir fiðlu, selló, píanó og strengi
- Frangis Ali-Sade Konsert fyrir slagverk og kammersveit
- Teh Tze Siew Bambusskógurinn fyrir 12 hljóðfæraleikara
- Sofia Gubaidulina Sjö orð Krists fyrir selló, bayan og strengi

